Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Kjartan Kjartansson skrifar 3. september 2026 10:50 NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu. Vísir/Getty Bandarískt móðurfélag NetApp á Íslandi svarar ekki spurningum um hvort að starfsfólki hér hafi verið sagt upp störfum. Talsmaður fyrirtækisins segir það „þróa skrifstofueignasafn þess til þess að styðja langtíma viðskipaáætlun þess“.
Á áttunda tug starfa hjá NetApp á Íslandi eru í hættu eftir að starfsfólki þar var tilkynnt að skrifstofan hér á landi yrði lögð niður í vikunni. NetApp á Íslandi er dótturfélag evrópsks dótturfélags NetApp í Bandaríkjunum. Fjölmiðlafulltrúi NetApp svaraði ekki spurningum Vísis um hvort að skrifstofunni hefði verið lokað eða hún færð úr landi og hvort að starfsfólki hefði verið sagt upp störfum eða fært til. „NetApp heldur áfram að þróa skrifstofueignasafn sitt til þess að styðja langtímaviðskiptaáætlun sína. Sem hluti af því verkefni er fyrirtækið að samræma fjárfestingar sínar í vinnustöðum þannig að þær styðji fyrirtækjamiðstöðvar og sérhæfingarmiðstöðvar sem liðka fyrir samstarfi, nýsköpun og árangri viðskiptavina,“ sagði í svarinu sem bandaríska fyrirtækið sendi Vísi. „Þessar ákvarðanir eru miðaðar að því að setja fyrirtækið í stöðu fyrir framtíðarvöxt á sama tíma og þær styðja þarfir þess,“ segir þar ennfremur. Um fimmtíu forritarar hafa starfað hjá NetApp á Íslandi samkvæmt heimildum Vísis. Í ársreikningi félagsins frá því í fyrra kom fram að um níutíu manns hefðu starfað fyrir fyrirtækið að jafnaði. Starfsemi skrifstofunnar á Íslandi tengdist þróun og rannsóknum. Hrönn Guðmundsdóttir, stjórnarformaður NetApp á Íslandi, vísaði á almannatengsladeild NetApp í Bandaríkjunum í gær. Hún vildi ekki tjá sig frekar um starfsemina á Íslandi í dag eftir að svar bandaríska félagsins bárust. Skriflegt svar NetApp í Bandaríkjunum við fyrirspurn Vísis á ensku má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. „NetApp is continuing to evolve its office portfolio to support its long-term business strategy. As part of that effort, the company is aligning its workplace investments to support enterprise hubs and specialized centers of excellence that enable collaboration, innovation, and customer success. These decisions are designed to position the company for future growth while supporting the needs of the business.“
Tækni Vinnumarkaður Bandaríkin Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira