„Lán á bara að vera lán“ Lovísa Arnardóttir skrifar 3. september 2026 16:02 Lilja segist ekki mikill aðdáandi verðtryggðra lána en hún skilji þörfina fyrir þeim. Vísir/Einar Lilja Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans segir að þó svo að verðtryggð lán séu leið margra til að komast inn á húsnæðismarkað sé það sýn hennar og bankans að verðtryggð lán séu ekki nauðsynleg til lengri tíma. Hún sjái fyrir sér framtíð þar sem vægi þeirra verður minna.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tilkynnti fyrr á árinu að fyrsta skrefið í áttina að afnámi verðtryggingar verði stigið um næstu áramót en það mun felast í því að fólk mun þurfa að standa skil á lágmarksafborgunum af láni sínu. Lilja ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær en hún skrifaði líka grein á Vísi um málið í gær. „Það er reyndar takmarkað framboð eftir vaxtadómana, en þetta er oft nauðsynleg leið fyrir fólk til að komast inn á húsnæðismarkaðinn vegna þess að mánaðarlegar greiðslur eru mun lægri af verðtryggðum lánum, en á móti kemur hækkar höfuðstóllinn um neysluvísitölu,“ segir Lilja. Hún segir óverðtryggð lán oft jafngóðan kost. „Fyrir þó nokkuð mörgum árum, kannski sex, átta árum, hófum við markvisst að reyna að gera óverðtryggð lán jafn aðlaðandi og verðtryggð og þegar ég segi aðlaðandi þá er fólk að horfa á hversu mikið það þarf að greiða í hverjum einasta mánuði fyrir íbúðalánið sitt.“ Óverðtryggð lán verði að vera jafn fýsileg Hún segir þá skipta máli að bjóða óverðtryggð lán sem fólk geti séð fyrir sér að taka þar sem það hafi raunverulegan valkost, miðað við verðtryggt, miðað við greiðslurnar. „Þetta höfum við verið svona að gera og nýtt þau tækifæri sem gáfust þegar vextir voru lágir, að bjóða þá mjög góð verðtryggð lán, og margir fóru á þann vagn og hafa ekki farið af honum síðan.“ Hún segir skiptar skoðanir á þróun vaxta yrði verðtryggingin lögð af en hennar skoðun sé sú að vaxtastefnan, það er breytingar á vöxtum Seðlabankans, myndi skila sér mun hraðar ef það væru eingöngu óverðtryggð lán. „Fólk finnur hraðar fyrir þeim og sér breytingarnar hraðar, því að breytingarnar verða mjög ósýnilegar þegar þær að hluta til fara bara beint á höfuðstól lánsins og það verður erfiðara fyrir fólk að fylgjast með hvernig hver vaxtabreyting dreifist yfir langan lánstíma. Þannig að það skilar sér ekki eins hratt í budduna hjá manni.“ Hún segir deildar meiningar um þetta og að Seðlabankinn sé til dæmis ekki sammála þessu. Skilur þörfina en er ekki aðdáandi Hvað varðar afnám verðtryggingar segist hún ekki aðdáandi verðtryggðra lána. „Lán á bara að vera lán. Þú borgar af láninu, þá lækkar höfuðstóllinn og greiðir vexti af því og bankinn sér svo um að fjármagna sig og er milliliður í þessum viðskiptum.“ Þó hún sé ekki aðdáandi verðtryggðra lána segist hún skilja vel hvernig þau hjálpa fyrstu og efnaminni kaupendum að komast í sitt eigið húsnæði. „En það er líka hægt að gera breytingar á öllu lánakerfinu varðandi óverðtryggð lán. Þannig að við höfum meiri sveigjanleika til þess að bjóða lægri vexti þar en þá þurfum við á móti til dæmis að geta tekið hærri uppgreiðslugjöld. Það er nú líka erfið umræða sem erfitt er að henda sér í en maður verður auðvitað að benda á þetta.“ Hún segir eflaust langt í að síðasta verðtryggða lánið verði veitt. „En ef vextir lækka og allir lántakar sjá sambærilegan kost í óverðtryggðu láni, þá myndi það gerast hratt og það gerðist rosalega hratt þegar vextir lækkuðu. Það algjörlega umturnaðist okkar útlánasafn, það gjörbreyttist á mjög stuttum tíma og þá erum við bara að tala um tvö ár. En það fór hvorugt fer alveg út, en þegar það er orðinn jafngóður kostur, þá er tækifæri.“
Fjármál heimilisins Efnahagsmál Landsbankinn Fjármálafyrirtæki Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Húsnæðismál Fasteignamarkaður Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ VR fundar með Samtökum atvinnulífsins í dag vegna forsendubrests kjarasamninga. Rúmur mánuður er þar til stéttarfélög geta sagt lausum samningum. Formaður VR segir þurfa aðgerðir og samtal núna, hún vilji ekki endurnýtt loforð. Hún segir VR vilja hærri laun og fleiri frídaga. 3. september 2026 08:32 Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Í gær þann 1.september tóku í gildi umfangsmiklar breytingar á greiðsluþátttöku almennings vegna þjónustu sjúkraþjálfara. Breytingarnar fela í sér að kostnaður sjúklinga eykst verulega á sama tíma og greiðsluþátttaka hins opinbera í nauðsynlegri endurhæfingu minnkar. 2. september 2026 10:32 Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Eftir að komugjöld til sjúkraþjálfara voru gagnrýnd af formanni Landssambands eldri borgara benti forsætisráðherra á að í fyrsta skipti fylgi lífeyri launatölu í landinu. Ráðstöfunartekjur eldri borgara séu því að fara aukast með sanngjarnari hætti. 2. september 2026 09:00 Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 1. september 2026 06:24 Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Verðbólgan verði þrálát út árið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Sjá meira
„Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ VR fundar með Samtökum atvinnulífsins í dag vegna forsendubrests kjarasamninga. Rúmur mánuður er þar til stéttarfélög geta sagt lausum samningum. Formaður VR segir þurfa aðgerðir og samtal núna, hún vilji ekki endurnýtt loforð. Hún segir VR vilja hærri laun og fleiri frídaga. 3. september 2026 08:32
Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Í gær þann 1.september tóku í gildi umfangsmiklar breytingar á greiðsluþátttöku almennings vegna þjónustu sjúkraþjálfara. Breytingarnar fela í sér að kostnaður sjúklinga eykst verulega á sama tíma og greiðsluþátttaka hins opinbera í nauðsynlegri endurhæfingu minnkar. 2. september 2026 10:32
Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Eftir að komugjöld til sjúkraþjálfara voru gagnrýnd af formanni Landssambands eldri borgara benti forsætisráðherra á að í fyrsta skipti fylgi lífeyri launatölu í landinu. Ráðstöfunartekjur eldri borgara séu því að fara aukast með sanngjarnari hætti. 2. september 2026 09:00
Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 1. september 2026 06:24