Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2026 12:32 Daði Óskarsson. Daði Óskarsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coripharma og tekur hann sæti í framkvæmdastjórn félagsins.
Í tilkynningu segir að Daði búi að yfir 15 ára reynslu úr lyfjaiðnaði, þar af 11 ár á vörustjórnunarsviði Medis þar sem hann gegndi meðal annars stöðu deildarstjóra og bar ábyrgð á umfangsmikilli aðfangakeðju sem náði til fjölmargra lyfjaframleiðenda. „Daði gekk til liðs við viðskiptaþróun Coripharma árið 2022 þar sem hann vann fyrst að verkefnum tengdum verktökuframleiðslu og síðar í auknum mæli að viðskiptaþróun eigin þróaðra lyfja félagsins. Á starfsferli sínum hefur Daði því byggt upp víðtæka reynslu af vörustjórnun, samhliða sterkum viðskiptatengslum við fjölbreyttan hóp erlendra viðskiptavina og samstarfsaðila, sem nýtist honum vel í nýju hlutverki,“ segir í tilkynningunni. „Það er virkilega spennandi tækifæri að fá að leiða vörustjórnunarsvið Coripharma. Ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk og halda áfram að byggja upp öflugt og skilvirkt vörustjórnunarsvið sem styður við áframhaldandi vöxt félagsins,“ er haft eftir Daða í tilkynningu. „Það er sérstaklega ánægjulegt að geta ráðið í svo mikilvæga stöðu úr hópi núverandi starfsmanna. Það sýnir þann styrk, þekkingu og reynslu sem við búum yfir innan Coripharma og er okkur mikilvægur grunnur þegar við höldum áfram að byggja upp fyrirtækið. Daði býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði vörustjórnunar. Skilvirkt og áreiðanlegt flæði vöru og þjónustu frá birgjum til viðskiptavina er lykilþáttur í áframhaldandi vexti og árangri Coripharma, og ég er sannfærð um að Daði muni gegna mikilvægu hlutverki í þeirri vegferð,“ er haft eftir Jónínu Guðmundsdóttur, forstjóra Coripharma. Coripharma er lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi á samheitalyfjum. Hjá félaginu starfa í dag um 230 manns.
Vistaskipti Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira