Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Agnar Már Másson skrifar 31. ágúst 2026 21:34 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, var í viðtali í síðasta kvöldfréttatíma Sýnar. Svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu álykta VR og fagfélög að leiðrétta þurfi kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu, fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir.
Fulltrúar VR og fagfélaga funduðu í kvöld um möguleg viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Þar var ályktun samþykkt þar sem samninganefndir VR, LÍV og fagfélaganna harma að forsendur kjarasamninga hafi brostið. Í ályktuninni lýsa samninganefndirnar eindregnum vilja til þess að finna leiðir svo kjarasamningar geti haldið gildi sínu. „Til að svo megi verða þarf að leiðrétta kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu, fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir. Enn fremur þurfa ríki og sveitarfélög að standa við skuldbindingar sínar í húsnæðismálum,“ segir meðal annars í ályktuninni. Samninganefndir fagfélaganna, LÍV og VR skora einnig á atvinnurekendur og stjórnvöld að mæta lausnamiðuð til leiks svo fljótt megi eyða óvissu á vinnumarkaði. Þá kemur fram að launafólk hafi undirgengist lágar launahækkanir í trausti þess að stór fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum og ríki og sveitarfélög stilltu gjaldskrárhækkunum í hóf. Vonir hafi staðið til þess að verðbólga gengi niður og stýrivextir fylgdu í kjölfarið, en ekkert af því hefur raungerst; verðbólga fer hækkandi og stýrivextir hafa verið háir í tæp fjögur ár. Þá er tekið fram að kjarasamningsbundin laun hafi hækkað minna en verðbólga og að húsnæðiskostnaður þorra launafólks hafi hækkað gríðarlega á samningstímanum. „Launafólk situr eftir með reikninginn,“ segir í ályktuninni, þar sem samninganefndirnar lýsa þungum áhyggjum af stöðu barnafjölskyldna. Þrátt fyrir fögur fyrirheit um að gæta að hag þeirra hafi álögur á barnafólk verið auknar og þjónusta við börn skert. „Þetta er jafnframt sá hópur samfélagsins sem ber þyngstar byrðar af háum stýrivöxtum í gegnum húsnæðislán og -leigu.“ Fyrr í kvöld ræddi Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður við Höllu Gunnarsdóttur formann VR og Jakob Tryggvason hjá Rafiðnaðarsambandi Íslands í fréttatímanum í kvöld. „Við erum reiðubúin í lausnamiðað samtal um að reyna að láta kjarasamninga halda,“ sagði Halla í fréttatímanum. „En það er alveg skýrt af okkar hálfu að þeir geti ekki haldið án þess að eitthvað komi til.“ „Nú verðum við að láta hendur standa fram úr ermum og bregðast við vandamálinu,“ segir Jakob. Fréttin hefur verið uppfærð.
Stéttarfélög Kjaramál Skattar, tollar og gjöld Efnahagsmál Lánamál Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira