„Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 21:29 Neytendasamtökin munu fylgjast grannt með bensínverðinu. Vísir Formaður Neytendasamtakanna segist ætla að fylgjast grannt með hækkunum á bensínverði á morgun. Stjórnvöld eigi ekki „að pissa í skóinn“ heldur bjóða upp á varanlegar aðgerðir gegn verðbólgu.
Tímabundin lækkun á virðisaukaskatti á bensín úr 24 prósentum í ellefu prósent rennur út á miðnætti og þar með hækkar bensínverðið á ný. „Neytendasamtökin, verðlagseftirlit ASÍ, FÍB og Samkeppniseftirlitið fylgjast með því að þetta muni skila sér að fullu til neytenda, að hækkanirnar verði ekki umfram það sem efni standa til,“ sagði Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, í kvöldfréttum Sýnar. Hann telur að árvökulir neytendur muni hafa samband verði eitthvað bogið við bensínverðið. Það sé hringlandaháttur af hendi stjórnvalda að lækka virðisaukaskattinn einungis tímabundið. „Þarna er verið að reyna að handstýra verðbólgunni á einhvern hátt en það kemur bara út þannig að verðskyn neytenda verður að engu. Það verður okkur mjög erfitt að fylgjast með hvað verðið í raun og veru á að vera,“ segir Breki. „Þetta skilaði sér í 0,68 prósenta lækkun á verðbólgu. Það er vel, en það verða að vera varanlegar aðgerðir til þess að lækka verðbólguna. Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn með þessum hætti eins og nú er gert.“ Nú þurfi allir að standa saman. „Það er há viðvarandi verðbólga. Nú verða allir að leggjast á árarnar og ná henni niður, ekki bara tímabundið heldur varanlega.“
Bensín og olía Neytendur Verðlag Skattar, tollar og gjöld Orkumál Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira