Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Sindri Sverrisson skrifar 28. ágúst 2026 12:08 Elías Rafn Ólafsson og Viktor Bjarki Daðason verða báðir í Sambandsdeild Evrópu í vetur. vísir Fjöldi Íslendinga spilar í Sambandsdeild Evrópu í vetur og sumir þeirra koma til með að mætast en þetta varð ljóst eftir að dregið var um leikjaniðurröðun í deildinni í dag.
Alls spila 36 lið í Sambandsdeildinni en ekkert íslenskt lið verður með að þessu sinni, eftir tap Víkinga gegn bosníska liðinu Borac Banja Luka í umspili í gær. Borac drógst gegn liðum á borð við Atalanta og Panathinaikos. FC Kaupmannahöfn, með Viktor Bjarka Daðason og Rúnar Alex Rúnarsson innanborðs, var í efsta styrkleikaflokki og mætir meðal annars Braga frá Portúgal og Rauðu stjörnunni frá Serbíu. Leikir liðanna í efsta styrkleikaflokki.UEFA Midtjylland, lið Elíasar Rafns Ólafssonar, fékk hollenska stórveldið Ajax og Pafos frá Kýpur úr efstu styrkleikaflokkunum. Panathinaikos, lið Sverris Inga Ingasonar, er einnig í keppninni en Sverrir sleit krossband í hné í sumar og verður því ekki með liðinu í vetur. Panathinaikos fékk meðal annars leik við enska liðið Brighton sem einnig var í 2. styrkleikaflokki. Leikir liðanna í 2. styrkleikaflokki.UEFA Twente, lið Kristians Nökkva Hlynssonar mætir meðal annars AGF Aarhus sem er með þá Mikael Anderson og Tómas Óla Kristjánsson í sínum röðum. Leikir liðanna í 3. styrkleikaflokki.UEFA Hearts, lið Tómasar Bents Magnússonar, fær til að mynda Monaco í heimsókn til Skotlands, sem og Víkingsbanana í Borac og danska liðið Nordsjælland. Brann, sem nú hefur fengið Kjartan Má Kjartansson og er einnig með Kristal Mána Ingason, Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atla Magnússon í sínum röðum, mætir AGF líkt og Kristian og félagar í Twente gera. Leikir liðanna í 4. styrkleikaflokki.UEFA Mikael Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru sem fyrr segir með danska meistaraliðinu AGF Aarhus og mæta tveimur Íslendingaliðum en einnig Braga og Gent auk Inter Escaldes sem verður fyrsta liðið frá Andorra til að spila í keppninni. Leikir liðanna í 5. styrkleikaflokki.UEFA Leikir liðanna í 6. styrkleikaflokki.UEFA
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Manchester City - Brighton | Stórleikur í Manchester-borg Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Sjá meira