Enski boltinn

„Auð­vitað er mark­miðið að slá marka­metið“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þrjár kynslóðir markaskorara fyrir Ísland. Eiður er með 26 mörk, Arnór með 14 og Andri Lucas er kominn upp í 12.
Þrjár kynslóðir markaskorara fyrir Ísland. Eiður er með 26 mörk, Arnór með 14 og Andri Lucas er kominn upp í 12. vísir/Anton & Getty

Andri Lucas Guðjohnsen hefur ekki bara verið að spila vel fyrir Blackburn því hann er líka búinn að vera heitur í íslenska landsliðsbúningnum. Hann skoraði tvö mörk í síðasta landsleikjaglugga.

„Síðasti landsleikjagluggi var svolítið sérstakur. Vorum lengi saman og þetta var ný upplifun. Þetta var önnur rútína. En þetta er geggjaður hópur og alltaf gaman að hitta strákana. Ég var ánægður með sjálfan mig í glugganum líka og vonandi vinnum við riðilinn í næsta glugga,“ segir Andri Lucas um fjögurra leikja landsleikjagluggann á dögunum.

Hann er búinn að skora tólf mörk fyrir landsliðið í 43 leikjum. Það er enn nokkuð í að hann nái pabba sínum, Eiði Smára, en hann skoraði 26 mörk fyrir landsliðið á sínum tíma.

Hann er aftur á móti farinn að anda ofan í hálsmálið á afa sínum, Arnóri Guðjohnsen, sem skoraði fjórtán landsliðsmörk.

„Ég sá eftir síðasta verkefni að það væri ekki svo langt í afa. Ég er ekkert sérstaklega mikið að hugsa um fjöldann eða markamet. Ég hef alltaf tekið einn leik í einu. Vonandi kemst ég nálægt markametinu og það væri geggjað að slá það met. Við Orri Óskars erum herbergisfélagar og saman í þessu,“ segir markamaskínan en Orri Steinn er einnig búinn að skora tólf landsliðsmörk og þeir félagar eiga mörg ár eftir í landsliðinu.

„Mér finnst skrítið að segja að það sé ekki markmiðið að slá markametið. Auðvitað er það markmiðið og ég er mikill markaskorari sem leikmaður. Það væri geggjað ef það gengi upp. Ef það koma aftur á móti 2-3 landsleikir í röð sem ég skora ekki í þá missi ég samt ekkert vitið og fókus.“

Hlusta má á viðtalið við Andra í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

„Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“

Að eiga þekktan föður sem náði langt í fótbolta getur verið erfitt. Andri Lucas Guðjohnsen segir það aftur á móti ekki lengur trufla sig að vera nefndur í sömu andrá og faðir hans, Eiður Smári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×