Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Samúel Karl Ólason skrifar 26. ágúst 2026 07:49 Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða og Stracta-hótela. Egill Aðalsteinsson Stracta-hótelin á Hellu eru til sölu, ásamt þremur veitingastöðum og þvottahúsi sem tilheyra rekstrinum. Hótelin heita Stracta Hótel og Stracta Hótel Mosfell en rekstur þeirra nær aftur til ársins 2014 en til stendur að láta hluta söluágóðans renna til góðra málefna. „
Þetta er stór ákvörðun fyrir mig þar sem hótelin hafa átt hug minn allan í rúman áratug,“ segir Hreiðar Hermannsson, stofnandi og eigandi Stracta, í tilkynningu. „Nú langar mig hins vegar að hægja aðeins á, verja meiri tíma með fjölskyldunni og sinna öðrum hugðarefnum. Þess vegna tel ég rétt að nýir eigendur taki við keflinu.“ Í tilkynningunni segir að hótelin hafi gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu ferðaþjónustu á Hellu. Þau hafi skapað um fimmtíu heilsársstörf og stutt við fjölbreyttari þjónustu og atvinnulíf á svæðinu, auk þess að hafa stutt við aukna þjónustu og uppbyggingu. „Hella hefur tekið miklum breytingum á þeim tíma sem við höfum starfað hér. Bærinn er einstaklega vel staðsettur og hefur fest sig í sessi sem mikilvæg bækistöð fyrir ferðamenn á Suðurlandi,“ segir Hreiðar. Hann telur einnig að fyrirhugaðar samgöngubætur á Suðurlandi muni styrkja stöðu Hellu enn frekar. Staðsetning bæjarins veiti þegar greiðan aðgang að fjölmörgum af þekktustu náttúruperlum og ferðamannastöðum Suðurlands. „Bætt vegakerfi á Suðurlandi, meðal annars með nýrri Ölfusárbrú og nýrri tengingu milli Þjórsárdalsvegar og Landvegar yfir Þjórsá við Búðafoss, mun styrkja stöðu Hellu sem miðlægs áningar- og dvalarstaðar fyrir ferðamenn á Suðurlandi,“ segir Hreiðar. Saman eru hótelin með 236 herbergi, þar af 185 á Stracta Hóteli og 51 á Stracta Hótel Mosfell. Til stendur að stækka Stracta Hótel um 224 herbergi með fjórum nýjum byggingum á tveimur hæðum. Jafnframt hefur verið ákveðið að bæta um 1.300 fermetra nýrri hæð ofan á núverandi aðalbyggingu hótelsins þar sem áhersla verður lögð á funda- og ráðstefnuaðstöðu. Sjá einnig: Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Hreiðar hefur ákveðið að láta hluta ágóðans af sölunni renna til góðra málefna. „Mér hefur vegnað vel og ég er þakklátur fyrir þann árangur sem við höfum náð. Mér finnst því mikilvægt að láta gott af mér leiða og hef ákveðið að hluti ágóðans af sölunni renni til góðra málefna,“ segir Hreiðar. KPMG hefur umsjón með söluferlinu. Reksturinn heldur áfram með óbreyttum hætti á meðan söluferlið stendur yfir. Salan hefur því ekki áhrif á bókanir eða þjónustu við gesti.
Rangárþing ytra Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira