„Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. ágúst 2026 21:36 Gylfi Tryggvason var kampakátur eftir sigurinn á Fram á heimavelli. vísir/guðmundur Vel lá á Gylfa Tryggvasyni, þjálfara Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir stórsigur á Fram, 4-0, á heimavelli í kvöld. Hann var einkar ánægður með frammistöðu síns liðs og hrósaði því í hástert í leikslok. „
Við bara fórum mjög ýkt í okkar gildi og það sem við vildum standa fyrir í dag. Stelpurnar lögðu sig hundrað prósent fram í dag, voru tilbúnar að hérna fara í stríð á vellinum og þegar þær voru með boltann, tilbúnar að vera hugrakkar og mér fannst þær bara frábærar í dag. Mér fannst þær ótrúlega góðar í dag og ég er mjög, mjög hamingjusamur með þessa frammistöðu,“ sagði Gylfi í samtali við Vísi eftir leik. Grindavík/Njarðvík leiddi með einu marki í hálfleik. Fram byrjaði seinni hálfleikinn vel en síðan náði Grindavík/Njarðvík aftur góðum tökum á leiknum. „Þær breyttu um kerfi í hálfleik og við þurftum smá tíma til þess að aðlagast því. Svo bara gerðu þær það. Þær eru ótrúlega klókar og skilja leikinn mjög vel, eru mjög góðar í að aðlagast breyttum nálgunum frá andstæðingum og mér fannst þær bara leysa þennan leik ótrúlega vel. Þær fundu þá bara nýju svæðin sem opnuðust og ég get ekki hrósað þeim mikið meira,“ sagði Gylfi. Létu Ásu fá boltann Grindavík/Njarðvík sótti mikið fram hægri kantinn í kvöld, sérstaklega í fyrri hálfleik, þar sem Ása Björg Einarsdóttir var mjög áberandi. Gylfi segir að ekki hafi verið lagt upp með það fyrir leik að sækja meira hægra megin. „Þetta bara spilaðist þannig. Við leggjum aldrei upp með að sækja eitthvað ákveðið megin eða ákveðið. Við leitum bara að svæðunum sem eru laus. Mér finnst við góðar í öllum tegundum af sóknarleik og í þetta sinn reyndist hægri kanturinn bara vera góður,“ sagði Gylfi. „Ása var frábær í dag og þá er ég bara ánægður með stelpurnar að láta hana fá boltann og sjá um þetta. En það var ekkert lagt upp með það fyrir leik. Þær spiluðu þetta bara þannig.“ Vill alltaf spila svona Með sigrinum í kvöld styrktu stelpurnar hans Gylfa stöðu sína í baráttunni um að lenda í efri helmingi Bestu deildarinnar eftir skiptingu. Gylfi vill halda áfram á sömu braut og lið hans var á í kvöld. „Ég vil bara spila svona alltaf. Ég væri til í það. Mér er alveg sama um hvar við lendum í töflunni og eitthvað svoleiðis. Ég er bara ánægður með hvernig liðið spilaði í dag. Mér fannst þetta frábært. Við förum mjög stolt af velli í dag eftir þessa frammistöðu og hvernig við spiluðum leikinn finnst mér bara frábært og við erum mjög ánægð með þetta. Þannig að við viljum bara halda áfram að byggja ofan á þetta,“ sagði Gylfi. Tengingarnar eru að myndast Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Grindavíkur/Njarðvíkur á þessu tímabili. „Ég ræddi aðeins fyrir leikinn að þetta snerist svolítið um að mynda tengingar á milli nýju leikmannanna okkar og það er að gerast. Við erum að setja nýja leikmenn inn á sem eru að koma inn af bekknum og skora beint inn í byrjunarliðið og standa sig vel. Við erum með nýjan markmann í öðrum hverjum leik og tengingarnar eru að myndast og þegar tengingarnar myndast finnst mér við vera frábært lið,“ sagði Gylfi. Fótbolti má alveg vera skemmtilegur Grindavík/Njarðvík var enn og aftur með nýjan markvörð í kvöld, Stephanie Bukovec. Hún tók sannarlega áhættu í leiknum en slapp með það. „Mér fannst hún geggjuð. Hún var mjög hugrökk og spilaði þennan leik eins og útispilari. Hún er útispilari og fær frelsi hjá okkur til þess að spila sem útispilari. Þótt hún sé í hönskum og öðruvísi lit á treyju hefur hún fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug og okkur finnst það bara gaman,“ sagði Gylfi. „Ef það kostar, og það hefði klárlega getað kostað mark í dag, erum við alveg tilbúin að mæta þeim afleiðingum. En það er ekkert alltaf sem það kostar mark, þannig að bara gaman. Fótbolti má alveg líka vera skemmtilegur sko og við reynum að hafa hann skemmtilegan og mér fannst þetta bara skemmtilegt.“
Besta deild kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Fram Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Fótbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda Fótbolti Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Fótbolti Fleiri fréttir Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira