Innlent

Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands fyrr í vikunni.
Andri Már og Ingunn Rut huldu andlit sín við komuna í Héraðsdóm Suðurlands fyrr í vikunni. Vísir/Anton Brink

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.

Sex eru ákærð fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti í apríl árið 2024. Aðalmeðferðin hófst á mánudag og stendur til að hún verði fram í næstu viku.

Ingunn Rut kaus að lesa yfirlýsingu sem hún hafði sjálf skrifað og sagðist ekki ætla að svara neinum spurningum. Áður en hún hóf að lesa yfirlýsinguna dró hún andan djúpt nokkrum sinnum, greinilega taugaóstyrk.

„Ég hef nú ákveðið að falla frá fyrri afstöðu varðandi sakarneitun og öllum sakargiftum í málinu,“ hóf Ingunn yfirlýsinguna á.

Hún játaði skýlaust að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung gagnvart brotaþola. Hún hafnar því að hann hafi verið bundinn á höndum og fótum.

„Ég sló brotaþola aldrei og myndi aldrei nota hnúajárn eða vopna til að slá aðra manneskju, hvað þá eldri mann.“

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×