Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 17. ágúst 2026 22:30 Skúli Thoroddsen, smiður frá Blönduósi. Egill Aðalsteinsson Gamla sýslumannshúsið í Vatnsdal var kallað fallegasta hús Íslands á nítjándu öld en var orðið nánast ónýtt fyrir aldarfjórðungi. Þá fékk húnvetnskur húsasmiður ástríðu fyrir því að gera það upp og núna má aftur telja það í röð fegursta húsa.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnaþing að gamla sýslumannshúsinu að Kornsá. Það var byggt árið 1879 og þykir í dag einhver mesta prýði Vatnsdals. En svo var ekki fyrir aldarfjórðungi en þá var það í niðurníðslu. Þá frétti smiður frá Blönduósi af því að húsið væri falt fyrir lítið verð gegn því skilyrði að það yrði gert upp. Hann heitir Skúli Thoroddsen og tók við húsinu árið 2000. Hér má sjá framhliðina fyrir og eftir breytingu: „Þetta verður bara strax ástríðufullt áhugamál og ég svona næ að njóta þess að vera hérna bara frá fyrsta degi. Næ að koma rafmagni og rennandi vatni í húsið. Og þá er náttúrulega ekkert mál að vera hérna,“ segir Skúli. Húsinu fylgdi sú kvöð að hann yrði að vera búinn að klára það að utan að fullu árið 2005. Hann stóð við það, en taka þurfti sökkulinn undan og steypa nýjan og endurnýja neðsta hluta burðarvirkisins. Nýr sökkull steyptur undir húsið.Úr einkasafni „Húsið byggir Lárus Blöndal sýslumaður. Hann hélt hérna mikið rausnarheimili, gerði vel við gesti og gangandi.“ Innviðir eru að miklu leyti upprunalegir, þar á meðal útihurðir og innihurðir, og mikill hluti af gólfum og þiljum sem og stiginn, en innanhússviðgerðum lauk Skúli að mestu árið 2010. Hann segist hafa reynt að elta upprunalega liti. Húsið er ekki síður fagurt að innan.Egill Aðalsteinsson -En hefurðu fengið opinberan stuðning? Er þetta kannski að megninu bara þín vinna? Blóð, sviti og tár frá þér? „Já, algjörlega, blóð, sviti og tár frá mér. En ég fékk þó svolítinn stuðning frá því sem þá hét Húsafriðunarnefnd ríkisins. Þannig að það hjálpaði mér. Svona borgaði bensínið fram og til baka.“ Frá upphafi viðgerðanna.Úr einkasafni Húsið nýtir Skúli núna sem frístundahús fyrir sig og fjölskylduna, jafnt sumar sem vetur, en hann er búsettur í Reykjavík. Hann segist stoltur af útkomunni. Og það er tekið eftir húsinu. „Óneitanlega vekur það athygli. Og það eru margir sem keyra hægt hérna framhjá, bílaleigubílar og rútur og fólk kemur út og tekur af þessu myndir. Ég er bara ánægður með það.“ Ljósmynd sem franski landfræðingurinn Henry Labonne tók af húsinu fyrir 140 árum en hann fór um Norðurland árið 1886. Henry Labonne -Myndirðu kalla þetta fegursta hús Vatnsdals? „Hann sagði það, hann Henry Labonne, sem ferðaðist um Ísland hérna fyrir þarsíðustu aldamót, að þetta væri fallegasta hús á Íslandi. Þannig að ég tek mark á honum,“ svarar smiðurinn Skúli en húsið má sjá betur hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Húsavernd Húnabyggð Fornminjar Hús og heimili Menning Tengdar fréttir Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Kattarauga nefnist friðlýst tjörn í Vatnsdal í Húnaþingi sem þykir sérstök sökum þess að á henni eru tvær fljótandi eyjar. Þjóðsagan segir að þar sé falin gullkista. 28. júlí 2026 23:26 Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22 Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Hundur á sveitabæ einum í Húnaþingi er orðinn stjarna á netinu. Hann liggur gjarnan á áningarstað við Vatnsdalshóla og bíður eftir ferðamönnum sem streyma að til að fá að klappa honum. 11. ágúst 2026 22:00 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira
Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Kattarauga nefnist friðlýst tjörn í Vatnsdal í Húnaþingi sem þykir sérstök sökum þess að á henni eru tvær fljótandi eyjar. Þjóðsagan segir að þar sé falin gullkista. 28. júlí 2026 23:26
Malbika í gegnum hólana í Vatnsdal Íbúar Vatnsdals í Húnaþingi sjá fram á umtalsverðar vegarbætur með lagningu bundins slitlags á þrettán kílómetra vegarkafla. Vanda þarf sérstaklega til verksins þar sem kaflinn liggur í gegnum friðlýsta Vatnsdalshóla. 17. júní 2026 07:22
Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Hundur á sveitabæ einum í Húnaþingi er orðinn stjarna á netinu. Hann liggur gjarnan á áningarstað við Vatnsdalshóla og bíður eftir ferðamönnum sem streyma að til að fá að klappa honum. 11. ágúst 2026 22:00