Hús og heimili

Fréttamynd

Stór­glæsi­legt Sigvaldahús á sölu

Sigvaldahús eru eftirsótt og elegant og í Hjálmholti í Reykjavík má finna eitt slíkt. Nú er neðri hæð hússins komin á sölu sem er heilir 242,3 fermetrar og ásett verð er 197,9 milljónir króna. 

Lífið
Fréttamynd

Tek mark á því að þetta sé fal­legasta hús Ís­lands

Gamla sýslumannshúsið í Vatnsdal var kallað fallegasta hús Íslands á nítjándu öld en var orðið nánast ónýtt fyrir aldarfjórðungi. Þá fékk húnvetnskur húsasmiður ástríðu fyrir því að gera það upp og núna má aftur telja það í röð fegursta húsa.

Innlent
Fréttamynd

Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið

Egill Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóri og athafnakonan Kittý Johansen hafa sett einbýlishús sitt að Melhæð 5 í Garðabæ á sölu. Eignin er 321 fermetri að stærð og ásett verð hennar 249,5 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Svana á tíma­mótum og selur slotið

Vöruhönnuðurinn Svana Lovísa Kristjánsdóttir hefur í áraraðir vakið athygli fyrir litríkan og óhefðbundinn stíl. Hún stendur á tímamótum, var að hætta starfi sínu hjá Epal eftir fimmtán ár þar og opnaði nýverið blómaskreytingafyrirtækið Stúdíó Flamingo. Þá var hún að fá samþykkt kauptilboð í hús í Hafnarfirði og er með bjarta og skemmtilega íbúð sína á sölu.

Lífið
Fréttamynd

Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð inn­réttaða sem í­búð

Tónlistarmaðurinn Jóhannes Patreksson, betur þekktur sem Jói Pé, og leikkonan Molly Carol Birna Mitchell eru að selja 101 fermetra eign að Miðhrauni 14 í Garðabæ. Um er að ræða skrifstofuhæð auk millilofts á annarri hæð og er ásett verð 49, 5 milljónir. Bannað er að búa í íbúðinni nema eigendur búi þar sjálfir ef brunavarnir eru fullnægjandi og engin börn á heimilinu.

Lífið
Fréttamynd

Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti

Alda Agnes Gylfadóttir framkvæmdastjóri Einhamars útgerðar og eiginmaður hennar Bergþór Gunnlaugsson hafa sett raðhús sitt í Völuskarði 34 í Hafnarfirði á sölu. Húsið er 231,6 fermetrar að stærð og ásett verð 214,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu

Hjónin Hrafnhildur Helga Össurardóttir og Árni Hjaltason hafa sett 162 fermetra einbýlishús sitt að Lokastíg á sölu. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum og er ásett verð 172,9 milljónir króna.

Lífið
Fréttamynd

Lita­valið sem breytti öllu á nýja heimilinu

Katrín Edda Þorsteinsdóttir, vélaverkfræðingur og áhrifavaldur, flutti nýlega heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni og kettinum Míó eftir fjórtán ára búsetu í Þýskalandi. Fjölskyldan festi kaup á húsi í Hveragerði og var eitt fyrsta verk hennar að kíkja í Slippfélagið og skoða spennandi liti fyrir ólík rými hússins.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Förðunardrottning selur á Fram­nes­vegi

Elín Reynis, einn færasti og vinsælasti förðunarfræðingur landsins, hefur sett huggulega fimm herbergja íbúð sína á Framnesvegi á sölu. Íbúðin er rúmlega 116 fermetrar og ásett verð sléttar 98 milljónir. 

Lífið
Fréttamynd

Edda Falak og Kristján Helgi selja í­búð í 101

Edda Falak Yamak, fyrrverandi hlaðvarpsstjórnandi, og Kristján Helgi Hafliðason, þjálfari hjá Mjölni, hafa sett íbúð sína að Holtsgötu 24 á sölu. Íbúðin er 58,6 fermetrar að stærð og ásett verð hennar 61,9 milljón króna.

Lífið
Fréttamynd

Einar Örn og Birna selja ein­býlis­húsið

Hjónin Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, og Birna Ósk Hansdóttir, verkefna- og viðburðastjóri, hafa sett 222 fermetra einbýlishús sitt á Seltjarnarnesi á sölu. Ásett verð hússins er 214,9 milljónir króna. 

Lífið
Fréttamynd

Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi

Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi Hrím, og grínistinn Ari Eldjárn hafa keypt sér 209 fermetra einbýlishús að Melabraut 48 á Seltjarnarnesi. Ásett verð á eignina var 169,9 milljónir en parið fékk hana á 165 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar

Áhrifavaldarnir Ástrós Traustadóttir og Adam Helgason hafa fest kaup á húsi sem var áður í eigu ömmu hennar og afa. Parið sem á von á öðru barni sínu saman seldi fyrr á árinu íbúð sína í Fossvoginum.

Lífið
Fréttamynd

Rakel Sif og Gissur Ari selja á Ný­lendu­götu

Rakel Sif Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gissur Ari Kristinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs hjá Seltjarnarnesbæ, hafa sett á sölu 77,6 fermetra íbúð sína að Nýlendugötu 22. Ásett verð er 79,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Snæ­fríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101

Stjörnuparið Högni Egilsson tónlistarmaður og Snæfríður Ingvarsdóttir leik-og söngkona hafa sett íbúð sína á Kolagötu á sölu. Íbúðin er hin glæsilegasta, 125 fermetrar að stærð og ásett verð er 148,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Málara­meistari af­hjúpar al­gengustu mis­tökin í sumar­verk­efnunum

„Fólk eyðir oft miklum tíma í að velja lit en gleymir því sem skiptir mestu máli. undirbúningnum,“ segir Gylfi Már Ágústsson, sölumaður og málarameistari hjá Málningu. Hann hefur ráðlagt Íslendingum um málningarvinnu um árabil og veit að það eru yfirleitt ekki litirnir sem valda vandræðum heldur það sem gerist áður en fyrsta umferðin er borin á.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Leikarapar selur í 101

Leikarahjónin Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Einar Aðalsteinsson hafa sett íbúð sína í Bergstaðastræti á sölu. Er um að ræða 102,9 fermetra íbúð með tveimur stefnherbergjum og marmarabaðherbergi en ásett verð er 88,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

Lét drauminn rætast á Ítalíu

„Þetta gerist þegar þú ert ekki að leita,“ segir Svana Símonardóttir sem fann draumahúsið sitt á Ítalíu í fyrra. Að koma í húsið var í fyrstu eins og að stíga í tímavél og ferðast beint aftur til ársins 1970. Kominn var tími á endurbætur sem Svana og eiginmaður hennar Ríkarð réðust í.

Lífið
Fréttamynd

Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hag­nýt ráð frá múrara­meistara

Fáar eignir skipta fólk meira máli en heimilið. Samt er auðvelt að fresta viðhaldi þar til litlar skemmdir eru orðnar að kostnaðarsömum framkvæmdum. Það er einmitt kjarninn í herferð BM Vallár, „Gerðu vel við þína fasteign“, sem hvetur húseigendur til að bregðast við í tíma og nýta sér faglega ráðgjöf áður en hafist er handa.

Samstarf
Fréttamynd

GusGus drottning og frú selja í Hafnar­firði

Ofurparið Bryndís Hrönn eigandi markaðstorgsins Dunda og Margrét Rán söngkona hljómsveitanna GusGus og Vök hafa sett íbúð á besta stað í Hafnarfirði á sölu. Íbúðin er tæplega 92 fermetrar og ásett verð 78,9 milljónir.

Lífið
Fréttamynd

BSO-stöðin komin á nýtt heimili

Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar, BSO, er komið á nýjan stað. Húsið stendur nú á bílaplani Jólagarðsins og fær varanlegan stað í garðinum á næstu mánuðum. Eigandi hússins segir það fá að halda sinni upprunalegu mynd. 

Innlent