Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 17. ágúst 2026 13:02 Næringarfræðingur segir áform Hvals hf. um að hefja framleiðslu á járnbætiefni úr hvalkjötinu, í stað þess að selja kjötið til Japans, lofa góðu enda sé hvalkjöt gríðarlega járnríkt, mun járnríkara en nautakjöt.
Stjórnendur Hvals hf. hafa ákveðið að hætta að selja hvalkjöt til Japans og hyggjast þess í stað nýta kjötið til framleiðslu á járnbætiefni. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir í samtali við Morgunblaðið að járnskortur sé útbreiddur og því sé slík nýting á kjötinu öflugt úrræði. Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur segir miður að þorri fólks hafi hætt að borða hvalkjöt í seinni tíð vegna þess að kjötið sé gríðarlega járnríkt. „Og bara til að gefa hlustendum samanburð þá er nautakjöt með járn sem nemur 40 mg per kíló en langreyða hefur 300 mg per kíló þannig það er gígantískur munur á járni í þessum tveimur tegundum. Þannig þetta virðist vera góð leið til að nýta næringu úr hvalkjötinu því fæstir borða hvali.“ Samkvæmt Kristjáni Loftssyni verður bætiefnið í formi dufts sem selt verður í hylkjum og er kallað Reyðarjárn. Ekki er víst að hægt verði að selja vöruna til annarra landa en Færeyja, Noregs og Japan þar sem aðrir leyfa ekki viðskipti með hvalaafurðir. Elísabet segir hugmyndina fljótt á litið mjög góða enda glími fjölmargir við járnskort. Þá segir hún skortinn oft tengjast andlegri heilsu og því þurfi að huga að járnbirgðum. „Meira að segja hef ég verið með fólk sem er að keppa í íþróttum eða hlaupum og svo kemur í ljós að árangurinn er tengdur við það hvort fólk sé með nóg járn eða ekki. Oft hef ég heyrt að fólk fari alls konar leiðir til að fá járninngjöf þannig já, ég held að þetta sé mjög algengt.“
Hvalveiðar Hvalir Matur Heilsa Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira