Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir skrifar 13. ágúst 2026 11:32 Ég las grein Eydísar Ingu Valsdóttur, „Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi“, og tek heilshugar undir þau sjónarmið sem hún setur fram í greininni. Ég held að flestir foreldrar þekki vel púsluspilið sem fylgir hverju vori þegar láta þarf sumarfrí barna og foreldra ganga upp. Ég er algjörlega sammála því að Kópavogsbær geti og eigi að gera betur og að samræmd sumarfrístund fyrir börn á yngsta stigi væri mikilvægt skref í þá átt. Það er sérstaklega jákvætt að þessi umræða sé komin af stað og að tillaga um samræmda sumaropnun frístundaheimila sé á leið fyrir bæjarstjórn. Einmitt þess vegna langar mig að bæta einu mikilvægu sjónarhorni inn í umræðuna, stöðu fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra. Þetta er sami vandi og Eydís lýsir en með einum mikilvægum mun. Fyrir mörg fötluð börn eru valkostirnir sem aðrar fjölskyldur geta gripið til einfaldlega ekki í boði. Kópavogsbær hefur boðið upp á Hrafninn, frábært sumarúrræði fyrir fötluð börn. Þar er unnið mjög gott starf og slík þjónusta getur skipt sköpum fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Hrafninn er hins vegar ekki samfelld sumarþjónusta og ekki komast öll börn að. Plássin fyllast hratt og gildir þar „fyrstur kemur, fyrstur fær“. Ef barn fær ekki pláss í Hrafninum er ekki annað sambærilegt úrræði sem það getur einfaldlega farið í staðinn. Hrafninn fer líka í sumarfrí. Þá stöðvast þjónustan en stuðningsþarfir barnanna gera það ekki. Fyrir mörg þessara barna er ekki hægt að leysa það með því að bóka annað almennt sumarnámskeið. Síðan kemur annað bil í lok sumars. Þar myndast rúmlega vika þar sem þessi börn hafa ekkert sambærilegt úrræði. Fyrir sum börn er hægt að brúa eyður yfir sumarið með fótboltanámskeiði, listasmiðju eða öðru sumarstarfi. Fyrir mörg fötluð börn er sá möguleiki einfaldlega ekki fyrir hendi. Þau þurfa oft meiri stuðning, fyrirsjáanleika, starfsfólk sem þekkir þarfir þeirra og umhverfi sem hentar þeim. Þetta eru börn á yngsta stigi grunnskóla sem mörg hver munu, vegna stuðningsþarfa sinna, ekki geta verið ein heima næstu árin. Þegar við tölum um sumarfrístund í Kópavogi þurfum við því að gera greinarmun á því að hafa val um úrræði og að hafa ekkert úrræði. Fyrir marga foreldra felst púsluspilið í því að finna pláss á mismunandi námskeiðum púsla þeim saman yfir sumar. Fyrir foreldra margra fatlaðra barna er vandinn annar. Það er oft einfaldlega engir valkostir til að púsla saman. Hrafninn sýnir að Kópavogsbær getur skapað frábært sumarúrræði fyrir fötluð börn. Næsta skref hlýtur að vera að tryggja að fleiri komist að og að þjónustan sé samfelld. Börn og fjölskyldur þeirra eiga ekki að standa frammi fyrir tímabilum þar sem ekkert úrræði tekur við. Þörf barnanna fyrir stuðning tekur sér ekki frí þótt þjónustan geri það. Höfundur er móðir í Kópavogi og stjórnarmaður í SAMLEIK. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Kópavogur Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar