Innlent

Sækja slasaðan mann að Háafossi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Þyrlan er á leið á vettvang.
Þyrlan er á leið á vettvang. Landhelgisgæslan

Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur nú í átt að Háafossi, innst í Þjórsárdal, þar sem ferðamaður slasaðist.

Einar Valsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, segir í samtali við fréttastofu að maðurinn sé líklega ökklabrotinn, eftir að hafa hrasað.

Maðurinn sé í gili og aðkoman því erfið.

Útkallið barst um tíuleytið og þyrlan fór í loftið tuttugu mínútur í ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×