Innlent

Einn fluttur á slysa­deild í kjöl­far al­var­legrar líkams­á­rásar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
DJI_20260804153311_0062_D
Vísir/Vilhelm

Einn var fluttur á slysadeild vegna alvarlegrar líkamsárásar í heimahúsi í Kópavogi í dag.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að lögreglu hafi borist tilkynning um málið um þrjúleytið í dag. 

Einn hafi verið handtekinn vegna málsins en rannsókn þess sé annars á algjöru frumstigi.

„Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni. 

Fréttin er í vinnslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×