Golf

Spennan meiri í kvenna­flokki fyrir lokahringinn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Guðrún Brá er með forystuna og getur varið titilinn frá því í fyrra.
Guðrún Brá er með forystuna og getur varið titilinn frá því í fyrra. Mynd/GSÍ

Guðrún Brá Björgvinsdóttir jók forystu sína um eitt högg á þriðja hring Íslandsmótsins í golfi á Korpúlfsstaðavelli í dag. Þremur höggum munar á efstu konum.

Guðrún Brá náði forystunni á mótinu í gær með frábærum öðrum hring en hún lék lang best allra í gær, á tveimur undir pari, á meðan aðrar fóru ekki undir parið.

Hún var með tveggja högga forystu á Elsu Maren Steinarsdóttur úr Leyni fyrir daginn en forysta Guðrúnar Brá jókst til muna um tíma í dag og fór upp í fimm högg.

Guðrún fékk skolla á fjórtándu og fimmtándu braut í dag en fékk þó fugl á þeirri sextándu. Skrambi á sautjándu braut kom sér illa fyrir Guðrúnu Brá en skolli Elsu Marenar á sömu braut gerði að verkum að munurinn var þrjú högg í lok dags, þar sem báðar fóru lokaholuna á pari.

Guðrún lék alls á tveimur yfir pari í dag og er á einu höggi undir pari í heildina. Elsa Maren lék á þremur yfir pari og er á tveimur yfir pari eftir fyrstu hringina þrjá.

Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR var á flugi lengi vel og fékk þrjá fugla á fyrstu sjö brautunum og fór aðrar á pari. Ragnhildur fékk hins vegar skolla á fimmtándu og sextándu braut. Hún er á þremur höggum yfir pari eftir daginn, höggi á eftir Elsu Maren.

Gera má ráð fyrir spennu milli þessara þriggja á lokahringnum á morgun og munurinn töluvert minni en í karlaflokki þar sem Dagbjartur Sigurbrandsson er með sex högga forystu á toppnum.

Í fjórða til sjötta sæti eru Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Eva Kristinsdóttir, GM, og Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, allar á tíu yfir pari vallar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×