Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Valur Páll Eiríksson skrifar 8. ágúst 2026 18:19 Guðrún Brá er með forystuna og getur varið titilinn frá því í fyrra. Mynd/GSÍ Guðrún Brá Björgvinsdóttir jók forystu sína um eitt högg á þriðja hring Íslandsmótsins í golfi á Korpúlfsstaðavelli í dag. Þremur höggum munar á efstu konum.
Guðrún Brá náði forystunni á mótinu í gær með frábærum öðrum hring en hún lék lang best allra í gær, á tveimur undir pari, á meðan aðrar fóru ekki undir parið. Hún var með tveggja högga forystu á Elsu Maren Steinarsdóttur úr Leyni fyrir daginn en forysta Guðrúnar Brá jókst til muna um tíma í dag og fór upp í fimm högg. Guðrún fékk skolla á fjórtándu og fimmtándu braut í dag en fékk þó fugl á þeirri sextándu. Skrambi á sautjándu braut kom sér illa fyrir Guðrúnu Brá en skolli Elsu Marenar á sömu braut gerði að verkum að munurinn var þrjú högg í lok dags, þar sem báðar fóru lokaholuna á pari. Guðrún lék alls á tveimur yfir pari í dag og er á einu höggi undir pari í heildina. Elsa Maren lék á þremur yfir pari og er á tveimur yfir pari eftir fyrstu hringina þrjá. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR var á flugi lengi vel og fékk þrjá fugla á fyrstu sjö brautunum og fór aðrar á pari. Ragnhildur fékk hins vegar skolla á fimmtándu og sextándu braut. Hún er á þremur höggum yfir pari eftir daginn, höggi á eftir Elsu Maren. Gera má ráð fyrir spennu milli þessara þriggja á lokahringnum á morgun og munurinn töluvert minni en í karlaflokki þar sem Dagbjartur Sigurbrandsson er með sex högga forystu á toppnum. Í fjórða til sjötta sæti eru Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Eva Kristinsdóttir, GM, og Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG, allar á tíu yfir pari vallar.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira