Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 14:58 Verslanirnar Barnaloppan og Góði hirðirinneru nýrverið orðnar nágrannar. Samsett Eigendur Barnaloppunnar biðla til leigjenda sinna að áframselja ekki barnavörur keyptar í Góða hirðinum á hærra verði í versluninni.
Eigendur Barnaloppunnar, sem leigir út bása þar sem hægt er að selja og kaupa notuð barnaföt, biðla til leigjenda sinna í færslu á Facebook. Þar segir: „Við viljum ekki að það sé verið að fara gagngert í Góða hirðinn og kaupa barnavörur og selja hér á dýrara verði. Það væri yndislegt ef hægt væri að stunda svoleiðis viðskipti annars staðar heldur en hér hjá okkur. Það á að vera hægt að gera góð kaup bæði í Góða hirðinum og í Barnaloppunni.“ Guðríður Gunnlaugsdóttir, ein eigenda Barnaloppunnar, segir þau í rekstrarteyminu verða vör við einstaka leigjendur sem stundi slík viðskipti. „Auðvitað er fólk bara að reyna að redda sér en okkur er illa við þetta. Við viljum helst ekki að það sé verið að gera þetta hjá okkur. Það er hægt bara að selja þetta á netinu eða eitthvað ef fólk vill vera í þessu,“ segir Guðríður. Verði vör við fólk „moka í körfurnar“ Barnaloppan flutti einmitt á dögunum í nýtt húsnæði, í gömlu kassagerðina á Köllunarklettsvegi í Reykjavík. „Við erum bara við hliðina á Góða hirðinum í sama húsnæði og það er svo gaman að fólk geti tekið bara svona góðan „thrift“ dag,“ segir Guðríður. Vandamálið sé ekki nýtt en sé mun augljósara eftir flutningana, þegar verslanirnar tvær eru við hliðina á hvor annarri. „Maður sér þau moka í körfurnar og þetta er orðið svona nokkuð augljóst á sumum básum.“ Viðskiptavinir hafi tekið eftir umræddum básum og jafnvel sniðgangi umrædda bása. „Ég hef talað við nokkra kaupendur og það eru flestir farnir að sniðganga þetta út af því að verðið er oft bara of hátt. Það á náttúrulega að vera hægt að kaupa ódýrt hjá okkur.“ „Bíddu, er þetta verðmiðinn?“ Stundum gleymist jafnvel að taka verðmiðana frá Góða hirðinum af vörunum sem eru til sölu í Barnaloppunni. Kaupendur séu eðlilega ekki sáttir við það þegar verðmiðinn sé hærri en sá gamli. „Það lítur enn verr út þegar fólk kemur til okkar á kassann og ætlar að kaupa eitthvað og er bara: bíddu, er þetta verðmiðinn? Þegar kaupendur eru farnir að pirra sig þá þarf maður auðvitað að fara að kanna málið.“ Erfitt sé að hafa stjórn á athæfinu en þetta séu þó einstaka leigjendur og eigendur gruni að yfirleitt sé um þá sömu að ræða. Oftast séu þetta þeir sem leigi bása í lengri tíma og eigendur hafi leitt hugann að því að hægt væri að stoppa þetta með því að banna langtímaleigu. „Það er mjög erfitt að hafa „kontról“ á þessu en við viljum reyna að minnka þetta hjá okkur, sérstaklega núna. Ég meina, við erum hérna við hliðina á þeim.“ Annars segir hún flutningana hafa gengið vel. „Það var pínu stress en þetta reddaðist eins og það gerir alltaf á endanum. Við tróðum bara smá í geymslurnar en allt var orðið voða fínt þegar við opnuðum fyrir fólki. Við erum alveg ótrúlega þakklát fyrir frábærar móttökur á nýja staðnum Það eru allir ótrúlega ánæðir með þetta og við líka.“
Börn og uppeldi Deilihagkerfi Reykjavík Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Sjá meira