Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar 7. ágúst 2026 15:01 Gervigreindin gerir okkur öllum kleift að vinna miklu hraðar. En í stað þess að hvílast finnum við okkur bara fleiri verkefni. Verkefnin klárast aldrei. Vinnusýkin virðist vera okkur Íslendingum í blóð borin, kannski eru það áhrifin frá Bandaríkjunum, við mælum eigið virði í afköstum. Ég er engin undantekning, vinnan mín hefur alltaf verið áhugamálið mitt. Núna með komu gervigreindar er tækifæri til að snúa þessu við. Stóra spurningin er hvað við ætlum að gera við tímann sem hún gefur okkur. Ég er með tillögu: gerum minna. Kæri stjórnandi, hvað með 6 tíma vinnudag? Ef við ætlum að gera minna, þurfum við að fara að hugsa öðruvísi um vinnutíma okkar. Við höfum nú þegar upplifað þetta á eigin skinni. Þegar styttri vinnuvikan var prófuð hér á árunum 2015 til 2019, hjá yfir 2.500 manns á óbreyttum launum, leið fólki betur og það hafði meiri orku fyrir hreyfingu, vini og áhugamál. Það skilaði sér í afköstunum: framleiðni hélst sú sama eða jókst. Í kjölfarið fékk meirihluti vinnandi fólks á Íslandi styttri vinnuviku og hún er enn veruleiki í dag. Ég hef sjálf gert þessa tilraun sem atvinnurekandi: starfsfólkið mitt vann bara 6 tíma á dag og við sáum engan mun á afköstum, en starfsánægjan jókst. Þetta gerðum við áður en gervigreindin kom til sögunnar. Núna þegar hún tekur við stórum hluta af rútínuvinnunni er ekkert því til fyrirstöðu að taka næsta skref. Kæri atvinnurekandi, kæri stjórnandi, hvað með 6 tíma vinnudag á sömu launum? Starfsfólkið þitt verður glaðara og hugmyndaríkara og afköstin haldast þau sömu. Að láta sér leiðast er ofurkraftur En styttri vinnudagur skilar engu ef við fyllum lausu tímana jafnóðum með fleiri verkefnum og fleiri skyldum. Ég man hvernig það var að vera til fyrir internetið. Það var pláss til að láta sér leiðast og úr því spratt allt mögulegt: leikir, hugmyndir, dagdraumar. Ég finn það sjálf að bestu hugmyndirnar koma þegar ég er ekki að gera neitt, í göngutúr eða í sturtu, þegar hugurinn fær loksins að reika. Hugurinn þarf tómarúm til að skapa. Í dag fyllum við hverja einustu eyðu með símanum. Í biðröðinni, á umferðarljósunum, í auglýsingahléinu, alltaf fer síminn á loft. Við erum svo upptekin að við höfum ekki einu sinni tíma til að hugsa. Svo leggjumst við á koddann og þá kemur hugsunarskuldin: allt sem við áttum eftir að hugsa yfir daginn heldur fyrir okkur vöku. Hvenær fórstu síðast út úr húsi án símans? Það er eins og það sé búið að græða hann á hendina á okkur. Þú þarft ekki að afreka neitt Ég heyrði um daginn setningu sem ég elska: ef þú breytir því hvernig þú horfir á hlutina breytast hlutirnir sem þú horfir á. En horfum við rétt á lífið? Við lifum fyrir hápunktana, skíðaferðina í Alpana eða jógaferðina til Balí, en lífsgæðin búa ekki í staðsetningunni eða viðburðinum heldur í ferðalaginu sjálfu, í því hvernig okkur líður á venjulegum þriðjudegi. Tíminn sem gervigreindin gefur okkur til baka er einmitt svona hversdagstími: meiri tími fyrir sköpun og tengingar, meiri tími til að anda og njóta. Það skiptir ekki mestu máli hverju þú afrekar heldur að þú fylgir hjartanu þínu. Innsæið þitt spyr ekki hvað þú kláraðir í dag. Það spyr hvort þér líði vel og hvort það sé gleði í því sem þú ert að gera. Þegar vélarnar sjá um afköstin fáum við loksins næði til að hlusta á innsæið. Næst þegar tæknin sparar þér klukkutíma, ekki fylla hann. Farðu út að ganga, leyfðu þér að láta þér leiðast, skrifaðu niður drauminn sem þú hefur ekki þorað að segja upphátt. Lækkum í hausnum, opnum hjartað. Höfundur er stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og heldur Claude námskeið fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Heilbrigðismál Mest lesið Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Skoðun Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar