Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar 1. nóvember 2026 14:15 Ímyndum okkur skurðlækni sem segir sjúklingi sínum að skoðun hans á því hvar eigi að skera skipti litlu máli. Eða prest sem segir söfnuðinum að trú hans skipti í raun litlu. Við myndum treysta hvorugum. Samt þótti ekkert tiltökumál þegar Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra sagði í vikunni, spurður um áform ÁTVR um heimsendingu áfengis, að hans skoðanir skiptu í þessu máli litlu. Þýski félagsfræðingurinn Max Weber gerði fyrir rúmri öld greinarmun á embættismanni og stjórnmálamanni. Sómi embættismannsins felst í að framfylgja fyrirmælum af trúmennsku, jafnvel þótt hann sé þeim ósammála. Sómi stjórnmálamannsins felst í hinu gagnstæða: að taka afstöðu og bera á henni persónulega ábyrgð. Weber taldi að stjórnmálamaður sem hagaði sér eins og embættismaður brygðist hlutverki sínu. Ráðherra sem segir eigin skoðanir skipta litlu er að lýsa sjálfum sér sem embættismanni. En hann er ekki embættismaður. Hann er sá sem gefur fyrirmælin og á að hafa til þess dómgreind. Málið er nefnilega ekki á annarra forræði. ÁTVR heyrir undir fjármála- og efnahagsráðuneytið og ákvörðun um framtíð stofnunarinnar er á borði ráðherrans sjálfs. Flokkur hans, Viðreisn, hefur talað fyrir því að einokunarverslun ríkisins með áfengi verði afnumin. Ráðherrann fer því með málaflokk þar sem flokkur hans hefur skýra stefnu og hann sjálfur hefur valdið. Það er erfitt að hugsa sér aðstæður þar sem skoðun ráðherra skiptir meira máli. Ráðherrann vísar til þess að skiptar skoðanir séu innan ríkisstjórnarinnar. Það kann að vera. En formaður Samfylkingarinnar hefur lýst stuðningi við einkareknar verslanir, og þá stendur eftir Flokkur fólksins. Á að skilja ráðherrann svo að minnsti flokkurinn í stjórnarsamstarfinu hafi neitunarvald um stefnu Viðreisnar í málaflokki sem heyrir undir ráðherra Viðreisnar? Ráðherrann sagði líka að mestu skipti að starfað væri innan ramma laganna. Það er góð regla. Í vor var forsvarsmaður Smáríkisins sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að selja hvítvín í netverslun af lager hér á landi og afhenda það með sendli. Nú undirbýr stofnun undir ráðuneyti hans að selja vín á netinu af lager hér á landi og afhenda það með sendli. Lögin um verslun með áfengi og tóbak gera ráð fyrir verslunum með leyfi sveitarstjórnar, sama verði um allt land og aldursstaðfestingu á staðnum. Heimsending er hvergi nefnd. Einkaaðilar mega gera allt sem ekki er bannað, en ríkisstofnun þarf lagaheimild fyrir því sem hún gerir. Forstjóri ÁTVR segir engar athugasemdir hafa borist frá ráðuneytinu. Ráðherrann sem vill starfa innan ramma laganna virðist ekki hafa spurt hvar sá rammi liggur. Samflokksráðherra hans í dómsmálaráðuneytinu hefur raunar sagt að lögregla eigi að bregðast við refsiverðri háttsemi, og að engu eigi að skipta hvort hún sé stór í sniðum eða lítil. Á það líka við þegar seljandinn er ríkið? Þegar Daði Már var spurður hvort þá þyrfti ekki bara að breyta lögunum svaraði hann að það gæti vel verið. Það er rétt. Og sá sem helst getur lagt fram slíkt frumvarp er fjármála- og efnahagsráðherra. Sami ráðherra hefur innleitt orðið skattstyrk í opinbera umræðu, um það þegar ríkið innheimtir minna en það gæti og að hans gjaldskrárhækkanir séu verðbólguvaldandi en ekki hvetjandi. Hann hefur hins vegar ekki fundið orð yfir það þegar hagnaður af heildsölu tóbaks er notaður til að niðurgreiða smásölu ríkisins á áfengi í samkeppni við einkaaðila. Kannski hefur hann enga skoðun á því. Eða hún skiptir litlu. ,,Ríkið” ætlar sér að bjóða tveggja daga heimsendingu á hærra verð en einkaaðilar en þá bregður svo við að ráðherrann hefur loks skoðun, nánar tiltekið að það sé ,,eðlilegt að þjónusta vínbúðanna þróist í takt við samfélagið” „Í pistli í Morgunblaðinu skrifaði ráðherrann svo að ríkisstjórnin vikist ekki undan verkefninu og að viðsnúningur í rekstri ríkisins krefðist „festu, ábyrgðar og erfiðra ákvarðana“. Það er vel mælt. En ef það að leggja niður einokunarverslun á 21. öldinni er ekki bara erfið ákvörðun heldur svo erfið að skoðanir ráðherrans skipta litlu, hvar eru þá auðveldu ákvarðanirnar?“ Edmund Burke sagði kjósendum sínum í Bristol árið 1774 að kjörinn fulltrúi skuldaði þeim dómgreind sína, og að hann brygðist þeim ef hann fórnaði henni fyrir skoðanir annarra. Kjósendur Viðreisnar kusu flokk með skýra stefnu í þessu máli. Þeir eiga rétt á að vita hvort ráðherrann deilir henni. Ef skoðanir ráðherrans skipta litlu, hverra skoðanir ráða þá? Höfundur er annar eigenda Sante. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Sigurðsson Netverslun með áfengi Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun