Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Samúel Karl Ólason skrifar 6. ágúst 2026 10:37 Heilbirgðisstarfsmenn í verkfalli í austurhluta Austur-Kongó. AP/Constant Same Bagalwa Ebóla dreifist hraðar manna á milli í Austur-Kongó en hægt er að bregðast við henni. Þá eru heilbrigðisstarfsmenn á svæðinu þar sem faraldurinn er verstur í verkföllum vegna vangoldinna launa. Að minnsta kosti 3.874 hafa smitast og 1.751 hefur dáið.
Útlit er fyrir að fjöldi skráðra smita fari yfir fjögur þúsund í vikunni og hefur faraldrinum verið lýst sem þeim hraðskreiðasta sem vitað er um. Raunverulegur fjöldi smitaðra er að öllum líkindum mun hærri en skráningar segja til um. AP fréttaveitan hefur eftir yfirmanni Sóttvarnastofnunar Afríku að smitrakning nái ekki utan um að minnsta kosti sextíu til sjötíu prósent tilfella. Tedro Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sagðist í gær hafa heimsótt Kinshasa, höfuðborg Austur-Kongó. Hann sagði faraldurinn í hraðri útbreiðslu og að bæta þyrfti verulega í viðbrögð yfirvalda. Í samtali við Reuters segja sérfræðingar að dreifing veirunnar sé um fimm sinnum hraðari en í fyrri faröldrum. Til marks um það er bent á faraldurinn sem var áður sá stærsti í Kongó. Hann stóð yfir frá 2018 til 2020 en þá greindist 3.481 smitaður og 2.299 dóu á þessu tveggja ára tímabili. Það tók tíu mánuði að fara yfir tvö þúsund smitaða. Að þessu sinni fór fjöldi smitaðra í tvö þúsund á um tveimur mánuðum og varð faraldurinn sá stærsti í landinu á minna en þremur mánuðum. Fyrir þessari hröðu dreifingu eru nokkrar ástæður. Hófst í raun löngu fyrr Ein ástæða er að faraldurinn er vegna Bundibugyo-veirunnar, sem er sjaldgæfasta og í senn hættulegasta veiran sem veldur ebólu, af þremur. Hún virðist hafa verið í dreifingu um nokkuð skeið og jafnvel nokkra mánuði, áður en faraldri var lýst yfir í maí. Í einhverjum tilfellum voru tilfelli ranglega greind og jarðarfarasiðir og hvernig lík eru meðhöndluð í austurhluta Kongó hjálpuðu til við dreifingu veirunnar áður en viðvörunarbjöllur fóru að hringja. Samkvæmt Reuters eru þessir siðir enn til trafala. Veiran dreifist manna á millimeð líkamsvessum. Ebóla getur valdið miklum blæðingum og dauða. Engin lækning er til gegn ebólu en helmingur þeirra sem smitast deyr, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, en það hefur verið mismunandi milli faraldra. Sýnagreiningar voru einnig rangt framkvæmdar um skeið, þar sem verið var að leita að röngu afbrigði ebólu. Vísindamenn hafa áætlað að faraldurinn gæti hafa byrjað snemma í janúar. Þá áætla sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að í síðasta mánuði hafi um áttatíu prósent smita átt sér stað utan smitrakningakeðja. Smitrakning hefur gengið verulega illa á köflum vegna skorts á stuðningi, fjármagni og andstöðu heimamanna, svo eitthvað sé nefnt. Heilbrigðisstarfsmenn hafa ítrekað orðið fyrir árásum fólks sem neitar að trúa því að veiran sé raunveruleg. Sjá einnig: Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólufaraldri Önnur ástæða er að ekkert bóluefni né meðferðarúrræði er til við Bundibugyou-afbrigði veirunnar sem veldur ebólu. Hún er bæði sú sjaldgæfasta af veirunum þremur sem valda ebólu og sú hættulegasta. Hún hefur einungis tvisvar sinnum áður verið í dreifingu, svo vitað sé. Það var í Úganda árið 2007 og Austur-Kongó árið 2012. Heilbrigðisstarfsmenn í verkföllum Enn ein ástæða fyrir hraðri útbreiðslu ebólu er í að í Austur-Kongó hafa umfangsmikil átök átt sér stað um langt skeið. Það hefur komið verulega niður á viðbragði við faraldrinum og smitrakningu. Átökin hafa einnig stökkt fjölda fólks á flótta og ferðast mikið af fólki um svæðið, bæði á leið annað á svæðinu, eins og til flóttamannabúða, eða til annarra ríkja. Það sem meira er, þá bera íbúar svæðisins mjög lítið traust til yfirvalda og nær það vantraust utan um heilbrigðisstarfsmenn. Aðstæður þeirra eru að mörgu leyti verulega slæmar. Margir hafa veikst og dáið og hefur reynst þeim erfitt að fá greidd laun. Margir hafa farið í verkfall á undanförnum dögum, sem hefur enn frekar komið niður á viðbrögðum við faraldrinum. Blaðamaður AP fréttaveitunnar ræddi nýverið við einn starfsmann sem sagði af hverju hann vildi hætta störfum.
Austur-Kongó Ebóla Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Sjá meira