Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Sigurgeir Þorkelsson skrifar 28. júlí 2026 22:20 Agnar Már Másson, til vinstri, var viðstaddur þegar Ming Ting Mancel, til hægri, var dæmd til tólf ára fangelsisvistar fyrir samverknaði í morði á dóttur sinni. Samsett „Það þarf ekki að koma á óvart að hún sýni ekki mikil viðbrögð,“ sagði Agnar Már Másson, fréttamaður Sýnar, um viðbrögð Ming Ting Mancel við dómsuppkvaðningu í dag. Að sögn hans hefur skortur á hluttekningu einkennt fas Mancel hingað til en hún hélt uppteknum hætti í dag og sýndi lítil viðbrögð þegar dómur var kveðinn upp.
Agnar Már hefur fylgt málinu frá upphafi og var meðal annars viðstaddur þinghald málsins. Rætt var við hann í beinni útsendingu í kvöldfréttum þar sem hann gerði upp daginn. Ferli málsins svokallaða á héraðsdómsstigi lauk í dag þegar Mancel var dæmd til tólf ára fangelsis fyrir samverknað, ásamt eiginmanni sínum, í morði á dóttur þeirra, Catherine. Málið hefur verið kennt við Edition-hótelið í miðbæ Reykjavíkur, þar sem atburðurinn átti sér stað. Nánar má lesa um dóminn í umfjöllun okkar hér að neðan. „Spurningin í þessu máli hefur meðal annars verið hvort Catherine hafi viljað fremja sjálfsvíg, þarna á þessu hótelherbergi, á verknaðarstundinni,“ segir Agnar, sem bendir á að miðað við niðurstöðu dómsins hafi svo ekki verið. Sjá má viðtalið við hann í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Saksóknari í málinu fór í kjölfarið fram á gæsluvarðhald yfir Mancel en hún hefur síðasta árið, tæplega, verið í farbanni. „Það þótti ekki vera tilefni til að setja hana í gæsluvarðhald, hún þótti ekki ógn við almenning en núna hefur héraðssaksóknari farið fram á gæsluvarðhald yfir henni á grundvelli almannahagsmuna,“ sagði Agnar. Það er nú þegar ljóst að Mancel mun áfrýja dómnum. „Hann telur ólíklegt að þetta gæsluvarðhald verði samþykkt,“ segir Agnar eftir samtal sitt við Ómar Örn Bjarnþórsson, verjanda Mancel, fyrr í dag. „Hann lýsti því þannig að hún væri dæmd fyrir samverknað fyrir það eitt að vera stödd í herberginu.“
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira