Innlent

Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Hér má sjá reyk stíga upp frá eldinum.
Hér má sjá reyk stíga upp frá eldinum. vísir/aðsend

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hádegisleitið í dag vegna elds sem kom upp í sumarbústað við Suðurlandsveg rétt fyrir utan bæjarmörkin.

Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við fréttastofu. Af myndum að dæma virðist sumarbústaðurinn vera skammt frá Heiðmörk.

Ert þú á staðnum? Við tökum á móti frásögnum, myndum og myndskeiðum á ritstjorn@visir.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×