Minnst 15 látnir í árásum Rússa Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. júlí 2026 21:56 Fimm létust í árásum Rússa á austurhluta borgarinnar Sloviansk í dag. Getty Minnst 15 eru látnir eftir árásir Rússa á Úkraínu í dag, þar af tíu á drónasýningu nærri Kænugarði, að sögn úkraínskra stjórnvalda.
Árásin hæfði heræfingarsvæði í Bucha-héraði, um 20-30 kílómetrum frá miðborg Kænugarðs. 27 heimili eru sögð hafa eyðilagst í árásinni. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að um hundrað hefðu særst í árásinni. Árásin var gerð með langdrægum skotflaugum en í gær fundaði Selenskí með fulltrúum Raytheon, bandarísks fyrirtækis sem framleiðir Patriot-loftvarnakerfi sem Úkraína þarfnast sárlega til að verjast þeim flaugum sem Rússar nota til að sækja fram í innrás sinnim, segir í umfjöllun AP. Donald Trump Bandaríkjaforseti hét því að veita Úkraínu leyfi til að framleiða Patriot-varnarkerfi fyrr í mánuðinum. Auk þess hafi fimm látist í annarri árás Rússa í austurhluta borgarinnar Sloviansk í dag. Úkraínuher hafi aukið eigin árásir á innviði Rússlands. Nú síðast hafi herinn ráðist á flutningamiðstöð Wildberries í Sankti-Pétursborg, en Wildberries er ein stærsta netsöluverslun Rússlands. Úkraína hafi beint árásum sínum á fjórar aðrar vörugeymslur Wildberries víðs vegar um Rússland á síðustu dögum og ollið gríðarlegum eldsvoðum. Úkraínuher réðst á vöruhús Wildberries í Sankti-Pétursborg í Rússlandi. Getty Jafnframt hafi sex látist og 26 særst í árás Úkraínuhers á rússnesku borgina Kirov. Selenskí sagði að ráðist hefði verið á „eina mikilvægustu hernaðaraðstöðuna“ í Kirov sem framleiði „íhluti fyrir flugvélar og flugskeytabúnað“ sem notaður er í árásum Rússa á Úkraínu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira