Crowberry fjárfestir í Jónsbók Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2026 12:37 Stofnendur Jónsbókar. Stjórnendur vísissjóðsins Crowberry Capital hafa fjárvest í gervigreindarfyrirtækinu Jónsbók. Það er fyritæki sem var stofnað árið 2024 og nýtir gervigreind til að auðvelda lagalega greiningu og önnur lögfræðistörf.
Í tilkynningu frá Jónsbók segir að forsvarsmenn fyrirtækisins muni nota fjármagnið til frekari vöruþróunar og til að flytja eftir útflutningsstefnu fyrirtækisins. Þegar hafi náðst góður árangur í Finnlandi og í Mið- og Austur-Evrópu, þar sem stofnendur Jónsbókar telja fyrirtækið hafa mikla vaxtarmöguleika. Ekki kemur fram í tilkynningunni um hve mikla fjárfestingu er að ræða. Jónsbók var stofnað árið 2024 af verkfræðingunum þremur Bjarna Braga Jónssyni, Bjarna Benediktssyni og Ágústi Gunnarssyni, ásamt lögmanninum Thelmu Christel Kristjánsdóttur. Fyrsta vara fyrirtækisins var sett á markað á Íslandi árið 2025 og var útflutningur til Evrópu hafinn í upphafi þessa árs. Í tilkynningunni er haft eftir Helgu Valfells, meðeiganda Crowberry að forsvarsmenn sjóðsins telji Jónsbók hafa áhugaverða markaðsnálgun. „Félagið nýtir gervigreind til að byggja upp einstaka lausn þegar kemur að lagalegri greiningu sem er mun nákvæmari en stóru gervigreindar módelin geta boðið upp og nær góðu samkeppnisforskoti á mörkuðum þar sem staðbundin þekking skiptir máli. Þegar fjárfest er snemma í félögum þá skiptir stofnendateymið miklu máli. Við hjá Crowberry finnum að hjá Jónsbók er teymi sem býr yfir með djúpri þekkingu á gervigreind og þörfum lögfræðinga. Þau hafa jafnframt sýnt mikla framkvæmdagetu og ráðdeildarsemi. Félagið hefur náð langt án utanaðkomandi fjármagns, en nú þegar stefnt er á aukinn útflutning teljum við rétta tímann fyrir fjármögnun,“ segir Helga Valfells. Bjarni Bragi Jónsson, framkvæmdarstjóri Jónsbókar,, segir almenn gervigreindarlíkön ekki sérstaklega byggð fyrir lög réttarheimildir og staðbundnar áherslur lögfræðinga. „Við höfum því lagt mikla áherslu á að tengja tæknina við staðbundnar og áreiðanlegar heimildir og þróa lausn sem hentar lagaumhverfi hvers markaðar. Á sama tíma höfum við hugað sérstaklega að forvinnslu gagna þannig að Jónsbók nýti stór tungumálalíkön á skilvirkan hátt sem skilar sér í lausn í hæsta gæðaflokki. Næsti áfangi felst í því að efla Jónsbók enn frekar, hraða vöruþróun og gera tæknilega innviði skalanlega milli landa án þess að tapa þeirri staðbundnu nákvæmni sem lögfræðingar þarfnast.“ Thelma Christel Kristjánsdóttir, CCO Jónsbókar, segir leiðarljós fyrirtækisins hafa verið gott samband við áskrifendur og gæði í úrlausnum. Það eigi við hvort sem það varði yfirferð samninga, tölvupósta eða mat á réttarstöðu. „Gæði í lögfræðilegum rannsóknum koma eingöngu með því að skilja réttarkerfi hverrar og einnar lögsögu ásamt því hvernig lögmenn starfa. Það hefur því verið einkum ánægjulegt að finna hversu góðar móttökur Jónsbók hefur þegar fengið innan og utan landsteinanna. Fjármagnið mun nýtast okkur vel við að efla samband við áskrifendur okkar, hraða áframhaldandi þróun Jónsbókar ásamt því að flýta alþjóðlegri sókn Jónsbókar.“
Gervigreind Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira