„Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júlí 2026 00:27 Edda og Beggi hafa lagt líf og sál í PRAKT. Innsent Skartgripaverslunin Prakt mun loka næstu mánuði eftir að eldur kom upp í húsnæði þeirra að Laugavegi. Að baki Prakt stendur gullsmíðaparið Sigríður Edda Bergsteinsdóttir og Þorbergur Halldórsson, eða Edda og Beggi eins og þau eru kölluð í daglegu tali.
Útlit er fyrir að eldurinn hafi kviknað í rafmagnstöflu hússins sem staðsett er í rými Prakt á neðstu hæðinni, en íbúðir eru á efri hæðum. Áður en Prakt flutti inn var rýmið gert upp að fullu, til að mynda með tilliti til rafmagns og vatns, og kemur það Begga því á óvart að eldur hafi geta komið upp þar. Í því leynist þó ljós punktur því eldurinn í rafmagnstöflunni bræddi fljótt í gegnum kaldavatnslögn sem lá utanáliggjandi nálægt rafmagnstöflunni. Byrjaði við það að fossa úr henni vatn sem talið er að hafi hægt á útbreiðslu eldsins. Þessi tilkynning blasir nú við viðskiptavinum þegar vefur verslunarinnar er opnaður. Skjáskot Skemmdir á rýminu eru þónokkrar en það hýsti bæði verslun þeirra og verkstæði. „Það eru meira og minna öll verkfæri ónýt,“ segir Beggi. „Þetta eru verkfæri sem maður hefur átt síðan maður var átján ára þegar maður byrjaði að læra.“ Tjónið er líka mikið fjárhagslega en Beggi segir að einstaka verkfæri geti kostað á aðra milljón. Þá þarf tæpast að nefna að vörur skartgripabúðarinnar eru verðmætar. „Sumt er illa farið, annað ekki,“ segir Beggi, sem er enn að reyna að átta sig á umfangi tjónsins. Beggi segir þau heppin að vera með góða öryggisskápa og eldvarnir, það hafi bjargað einhverju en reykskemmdir séu miklar. „Það er allt í sóti, það er sót úti um allt.“ Beggi reynir greinilega að halda í jákvæðar hugsanir en hann tilkynnir með örlítið bjartari tón í röddinni að allar íbúðir á efri hæðum hafi sloppið undan eldinum. Svona leit verslunin út fyrir brunann. Beggi segir að hún verði lokuð næstu tvo til þrjá mánuði í það minnsta. Innsent Ástríðuverkefni sem hófst fyrir sex árum „Við hönnum og framleiðum allt sjálf,“ er það fyrsta sem Beggi segir þegar hann er beðinn að lýsa Prakt. „Við elskum að starfa við þetta.“ „Það hefur gengið ljómandi vel, nóg að gera. Við stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka.“ Prakt opnaði fyrst dyr sínar í byrjun heimsfaraldursins og hafa þau því marga fjöruna sopið. Beggi segir viðskiptavini hafa verið góða blöndu Íslendinga og ferðamanna. Þá komi samheldni samfélagsins sterkt fram á svona stundum en Beggi segir að vel hafi verið haldið utan um þau, skilaboðum og símtölum hafi rignt inn og fólk með nálægan rekstur hafi boðið fram aðstoð. Þá sé líka mikil samheldni innan samfélags gullsmiða en þeim hefur þegar verið boðið að samnýta aðstöðu með öðrum. „Það eru allir að bjóða fram aðstoð. Þetta er eitt af þessum augnablikum þar sem maður uppgötvar samheldnina.“
Verslun Reykjavík Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi Sjá meira