Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Jakob Bjarnar skrifar 17. júlí 2026 13:12 Esther Guðjónsdóttir hefur farið þess á leit við sýslumanninn á suðurlandi að hann leggi lögbann á það sem hún kallar ólöglegar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá. Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga hefur krafist þess að Sýslumaður á Suðurlandi leggi lögbann á ólögmætar veiðar eigenda jarðanna Iðu 1 og Iðu 2 í Stóru-Laxá þar sem hún mætir Hvítá. Ef sýslumaður skirrist við að sinna því mun réttaróvissuna um allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins skapast.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Esther Guðjónsdóttir formaður félagsins sendi Vísi. Hún segir að eftir að samningi Stóru-Laxárdeildar við eigendur Iðu 1 og 2 var rift árið 2024 hafi miklar deilur staðið yfir um veiðar í ós Stóru-Laxár í Hvítá. Að sögn Estherar gera lax- og silungsveiðilög ráð fyrir því að sérstök úrskurðarnefnd skeri úr um svona deilumál, svokölluð Ósamatsnefnd. Eigendur ítrekað staðið að ólöglegum veiðum „Stóru-Laxárdeild fór fram á slíkan úrskurð og lá hann fyrir árið 2025. Óumdeilt þykir í ljósi þess úrskurðar að ós Stóru-Laxár í Hvítá tilheyri Stóru-Laxá og því sé undir Stóru-Laxárdeild Veiðifélags Árnesinga komið að ráðstafa veiðum þar.“ Í tilkynningunni kemur fram að Stóru-Laxárdeild hafi ráðstafað þeim veiðum til leigutaka til 10 ára, líkt og lög gera ráð fyrir. En eigendur hafa ekki látið sér segjast. „Þrátt fyrir úrskurð Ósamatsnefndar, lög um lax- og silungsveiði og ákvarðanir Stóru-Laxárdeildar um veiðar í ánni hafa veiðar landeigenda Iðu 1 og 2 staðið yfir linnulaust síðan – og það þrátt fyrir ítrekaðar og endurteknar ábendingar um að veiðar þeirra séu ólögmætar,“ segir Esther. Réttaróvissa við skylduaðild að veiðifélögum mun ríkja Í því ljósi telur Stóru-Laxárdeild sig nú nauðbeygða til að krefjast lögbanns á allar veiðar landeigenda Iðu 1 og 2 í ánni, alla sölu veiðileyfa og að þau heimili öðrum veiðar á umræddu svæði. Þá er það mat Stóru-Laxárdeildar að málið hafi gríðarmikið fordæmisgildi fyrir skipulag lax- og silungaveiði um land allt sem byggir á skylduaðild að veiðifélögum. „Fari svo að landeigendur við Iðu 1 og 2 fái óáreittir að halda sínum veiðum áfram í Stóru-Laxá eru eignarréttindi veiðiréttarhafa og markmið laga um skylduaðild að veiðifélögum virt að vettugi. Réttaróvissan sem úr yrði myndi valda veiðirétthöfum, landeigendum, bændum og veiðifélögum gríðarlegu fjárhagslegu tjóni – svo ekki sé minnst á réttaróvissuna sem fyrirsjáanlega mun skapast þegar allt skipulag veiðiréttinda í ám og vötnum landsins er tekið úr sambandi,“ segir Esther.
Stangveiði Bláskógabyggð Lax Jarða- og lóðamál Lögreglumál Tengdar fréttir Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra. 9. júlí 2026 15:00 Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður á Morgunblaðinu hefur verið kærður fyrir að hafa brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Kærandi er Bergsnös ehf. og Finnur Harðarson forsvarsmaður félagsins en gerð er krafa um að viðurkennt verði að Ólafur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar. 15. júlí 2026 14:34 Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá. 17. febrúar 2026 11:25 Allsvakalegt laxadráp á veiðisvæði Iðu Finnur Harðarson, umsjónarmaður Stóru Laxár, á í stökustu vandræðum með veiðimennskuna eins og hún er stunduð á Iðu I og Iðu II. Þar ríkir villta vestrið, að hans sögn. 8. nóvember 2023 09:13 Mest lesið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Erlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Fleiri fréttir Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Sjá meira
Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Esther Guðjónsdóttir, formaður Stóru-Laxárdeildar Veiðifélags Árnesinga, ritar harðorða grein á Vísi þar sem hún rekur flókna deilu sem á sér stað um veiði í Iðu, sem er ósasvæði Stóru-Laxár og Hvítár. Deilurnar eru harðar og meðal þess sem fram kemur í grein Estherar er að Finnur Harðarson, leigutaki Stóru-Laxár, hafi mátt þola líflátshótanir og líkamsárás. Finnur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að kæra. 9. júlí 2026 15:00
Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Ólafur E. Jóhannsson blaðamaður á Morgunblaðinu hefur verið kærður fyrir að hafa brotið siðareglur Blaðamannafélags Íslands. Kærandi er Bergsnös ehf. og Finnur Harðarson forsvarsmaður félagsins en gerð er krafa um að viðurkennt verði að Ólafur hafi gerst brotlegur við siðareglurnar. 15. júlí 2026 14:34
Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Eigendur sumarbústaðalóða á jörðunum Iðu I og II við Stóru-Laxá í Bláskógabyggð hafa fengið leyfi Hæstaréttar til að kæra úrskurð Landsréttar í deilu um vegslóða til réttarins. Málið er einn angi mikilla deilna landeigenda við leigutaka veiðiréttar í Stóru-Laxá. 17. febrúar 2026 11:25
Allsvakalegt laxadráp á veiðisvæði Iðu Finnur Harðarson, umsjónarmaður Stóru Laxár, á í stökustu vandræðum með veiðimennskuna eins og hún er stunduð á Iðu I og Iðu II. Þar ríkir villta vestrið, að hans sögn. 8. nóvember 2023 09:13