Brjálaðar boltamömmur berjast Dóra Júlía Agnarsdóttir og Magnús Jochum Pálsson skrifa 16. júlí 2026 13:26 Fjöldi öflugra leikara kemur við sögu í þáttunum. Boltamömmur eru nýir gamanþættir sem segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótbolta og lendir á skrautlegu sviði foreldrasamskipta, keppnisskaps og tilfinninga. Vísir frumsýnir í dag stiklu fyrir þættina sem koma á Sjónvarp Símans í september.
Boltamömmur eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, og leikstjórar þáttaraðarinnar eru Hannes Þór Halldórsson og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Þættirnir eru framleiddir af Atlavík sem hafa framleitt fjölda þáttaraða á borð við Iceguys og Bannað að hlæja. Þættirnir eru skrifaðir af Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur, Sóla Hólm, Hafsteini Gunnari, Lilju Nótt og Hannesi Þór. Helstu hlutverk eru skipuð Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Lilju Nótt, Þorvaldi Davíð Kristjánssyni, Hildi Völu Baldursdóttur, Önnu Svövu Knútsdóttur, Iðunni Ösp Hlynsdóttur, Ólafi Egilssyni, Mikael Kaaber og Sveppa. Stikluna fyrir þættina má sjá hér að neðan: Byggir á reynslu boltamömmu „Hugmyndin kom til mín á hliðarlínunni í mínu eigin boltamömmulífi sem er svo ótrúlega spennandi og skemmtilegt. Þar er alltaf nóg af hasar og drama, jafnvel meira utan vallar en innan,“ segir Lilja Nótt um þættina. Boltamömmurnar lenda í alls konar furðulegum aðstæðum. „Svo hafði mig lengi langað til að vinna með Hannesi Þór sem mér fannst augljóst val til að leikstýra þessu, ásamt Hadda Gunna sem var frábært að fá með í verkefnið,“ bætir hún við en Boltamömmur eru ein af átta íslenskum leiknum þáttaröðum sem eru framundan í Sjónvarpi Símans Premium. Þættirnir hafa þegar vakið athygli eftir að myndskeið fór í dreifingu síðasta vor af nokkrum konum í grófum slagsmálum á fótboltamóti barna. Reyndist myndbandið vera leikið og hluti af tökum fyrir þættina. „Við erum með frábæran hóp fólks í teyminu, en hugmyndin um fótboltaforeldra og dramatíkina sem heltekur þá hefur vaxið, dafnað og orðið að skemmtilegum heimi sem iðar af lífi,“ segir leikstjórinn Hannes Þór. „Við hjá Atlavík höfum þróað verkefnið ásamt frábærum hópi undanfarin tvö ár en það verður virkilega gaman að sjá þetta allt taka á sig mynd.“
Bíó og sjónvarp Síminn Fótbolti Börn og uppeldi Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira