David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. júlí 2026 16:50 Beckham-fjölskyldan bregst við marki Bellingham. Getty Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast.
Englendingar eru komnir í undanúrslit Heimsmeistarmótsins í knattspyrnu eftir að hafa unnið Norðmenn í fræknum sigri á laugardag þar sem leikar fóru 2-1. Meðal áhorfenda á leiknum, sem fór fram í Miami í Flórída, var Beckham-fjölskyldan, það er að segja hjónin Victoria og David og þrjú barna þeirra, Romeo, Cruz og Harper. Ken Paves, Harper Beckham, Victoria Beckham, Romeo Beckham og David Beckham á leiknum. Cruz vantar á myndina.Getty Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma og var leikurinn því framlengdur en á 93. mínútu kom miðjumaðurinn Jude Bellingham hvítliðum svo yfir. Við það ærðust áhorfendur af gleði, þar á meðal í lúxusstúku Beckham-fjölskyldunnar. Meðan David kýldi loftið af gleði og synirnir lyftu höndum á loft þá sat Victoria pollróleg í sæti sínu, líkt og ekkert hefði í skorist. Myndir af fagnaðarlátum fjölskyldunnar og viðbragðsleysi Victoriu hafa síðan þá farið í dreifingu og vakið kátínu netverja og fjölmiðlafólks. View this post on Instagram A post shared by Jenny Johnson (@jennyjohnsonhi5) „Það er ekkert eins og það að hvetja England áfram af öllu hjarta að heiman, síðan er klippt yfir á Victoriu og við sjáum þetta sígilda kryddpíubros! Það er svo smitandi,“ skrifaði enski grínistinn Jenny Johnson á Instagram og birti myndir af Beckham-fjölskyldunni. „Áður fyrr hélt ég að ég væri æst meðan ég horfði á íþróttir en Victoria slær áhuga mínum við! Í hvert skipti sem ég sé hana hrópa ég: „Kryddaðu lífið þitt,“ því orkan hennar er rafmögnuð,“ grínaðist Johnson. David ákvað að svara grínistanum með ummælum við færsluna og sló sjálfur á létta strengi: „Hún fagnaði innra með sér lofa ég, hún var aðeins hægari að bregðast við en ég.“ Þá má nefna að Victoria stóð á endanum á fætur og klappaði fyrir Ljónunum þremur. Jude Bellingham fagnar eftir að hafa skorað snemma í framlengingunni.Getty Victoria hefur áður útskýrt af hverju hún er vanalega svona svipbrigðalítil en það væri vegna þess að David er jafnan henni á vinstri hlið. Brosið væri miklu betra frá vinstri hliðinni meðan hún liti fáránlega út frá hægri hliðinni og því brosti hún minna. Victoria hefur auðvitað séð sinn skerfinn af fótboltaleikjum hafandi verið gift fótboltakappa og elt hann á bæði stórmót og deildarleiki í hinum ýmsu löndum. Fyrir tveimur árum viðurkenndi hún sömuleiðis að hún hefði aldrei notið fótbolta fyrr en á síðustu árum. „Ég naut þess aldrei að horfa á fótbolta,“ sagði Victoria en bætti við að það hefði breyst eftir að David varð hluti af eigendahópi Inter Miami. „Núna þegar við erum í Miami finnst mér ég tilheyra. Ég á í vinasamböndum með fjölskyldum leikmannanna.“
HM 2026 í fótbolta England Deilur hjá Beckham-fjölskyldunni Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Sjá meira