ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Birgir Olgeirsson skrifar 9. júlí 2026 20:02 Guðlaugur Þór Þórðarson og Dagbjört Hákonardóttir tókust hart á um Evrópusambandið, sjávarútvegsmál og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum. Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag.
Umræðan hefur harðnað eftir að Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, sagði að ríki sem gengju í Evrópusambandið yrðu að lúta sameiginlegri sjávarútvegsstefnu þess. Utanríkisráðherra Íslands hefur sagt þau ummæli ekki samræmast samtölum sínum við Hollendinga og sína kollega. Þá hafa svör danska umhverfisráðherrans við fyrirspurnum í danska þinginu einnig verið dregin inn í íslensku umræðuna. Þar kemur fram að Evrópusambandið hafi einkarétt til ákvarðana um vernd lífrænna auðlinda hafsins innan ramma sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar, en að umfang þess valds sem Ísland þyrfti að framselja við hugsanlega aðild færi eftir niðurstöðu aðildarviðræðna. Í öðru svari danska umhverfisráðherrans segir að það sé almenn regla að Evrópuréttur gangi framar landsrétti á þeim sviðum þar sem aðildarríki hafi framselt vald til sambandsins, og að það eigi einnig við um sjávarútvegssvið. Í svari ráðherra sem barst í byrjun júní er það ítrekað að engin þjóð hafi hlotið undanþágu frá sjávarútvegsstefnu sambandsins til þessa. Staða Íslands færi eftir niðurstöðu aðildarviðræðna. Sakar stjórnvöld um blekkingar Guðlaugur segir þetta staðfesta það sem andstæðingar aðildar hafi lengi bent á: að Ísland geti ekki gengið í Evrópusambandið án þess að verða hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Hann sagði stjórnvöld hafa forðast að svara því skýrt hvort Ísland yrði aðili að stefnunni og sakaði þau um blekkingar í málinu. „Þetta er hreint og klárt valdaframsal, gríðarlegt valdaframsal,“ sagði Guðlaugur Þór. Hann sagði stóra muninn vera þann að Íslendingar stjórni sjávarútvegsmálum sínum núna sjálfir, bæði innan íslenskrar lögsögu og þegar kemur að samningum um deilistofna. Við inngöngu í ESB myndi Brussel hins vegar fara með lykilvald á þessu sviði. Ísland haldi forræði Dagbjört hafnaði því að íslensk stjórnvöld væru að fela eitthvað fyrir kjósendum. Hún sagði íslenska samningsmarkmiðið skýrt: Ísland ætti að halda forræði yfir sjávarauðlindinni innan íslenskrar fiskveiðilögsögu, stjórn veiða og skiptingu aflaheimilda. „Íslenska samningsmarkmiðið er mjög skýrt. Við erum ekkert að fara fram á neinar sérstakar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Samningsmarkmiðið er forræði yfir sjávarauðlindinni innan íslenskrar fiskveiðilögsögu; stjórn veiða, skipting aflaheimilda og sjálfbær nýting stofnanna.“ Sérstaklega þyrfti að skilgreina íslenskt fiskveiðistjórnunarsvæði þar sem staðbundnir stofnar, á borð við þorsk og ýsu, væru íslenskar auðlindir. Dagbjört sagði rangt að halda því fram að erlend skip gætu einfaldlega komið hingað eftir hugsanlega aðild og veitt íslenska staðbundna stofna. Um deilistofna, á borð við makríl, kolmunna og norsk-íslenska síld, þyrfti hins vegar áfram að semja, líkt og Ísland geri nú þegar við Evrópusambandið og önnur ríki. Fólkið muni hafna slíku valdaframsali Guðlaugur sagði þessi svör ekki breyta kjarna málsins. Ef Ísland yrði hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB yrði stefnunni stýrt frá Brussel. Hann sagði fráleitt að tala um ávinning af því að setja flökkustofna í hendur annarra eða láta Evrópusambandið semja fyrir Íslands hönd. Dagbjört sagði hins vegar ekkert hættulegt við að láta reyna á aðildarviðræður. Hún sagði Ísland eiga að fara hnarreist til viðræðna, gera ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni og sjá hvað fengist fram við samningaborðið. Hún sagði heiminn hafa breyst frá því að aðildarviðræður voru síðast á dagskrá, meðal annars vegna Brexit. Ísland ætti mikið undir því að ná betri markaðsaðgangi fyrir sjávarafurðir og það lægi ekki fyrir hvað væri í boði nema samið yrði. Guðlaugur sagðist ekki óttast samningaviðræður, heldur að Ísland gengi í Evrópusambandið. Þegar fólk væri upplýst um staðreyndir málsins myndi það, að hans mati, hafna slíku valdaframsali.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Utanríkismál Evrópusambandið Reykjavík síðdegis Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira