„Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Smári Jökull Jónsson skrifar 10. júlí 2026 11:38 Stór hópur barna taka þátt í Vísindaskólanum. Vísir/Smári Jökull Erfðaefni og maurar er á meðal þess sem nemendur fræðast um í Vísindaskóla Náttúrusafns Kópavogs og umsjónarmaður segir mikilvægt að kynna náttúruna fyrir börnum. Mauradrottningin er í sérstöku uppáhaldi og óhætt að segja að hún hafi fengið áhugavert nafn.
Aðalmarkmiðið í Vísindaskólanum er að skemmta sér vel og kynna náttúruna fyrir börnunum. Hann er starfræktur í húsnæði Náttúrusafns Kópavogs í Hamraborg og umhverfið í kring er sömuleiðis nýtt til hins ítrasta. Hvað eruð þið að gera stelpur? „Skoða DNA-ið okkar,“ segir Sóley Lóa sem er ein af nemendum skólans. Krakkarnir hlusta á kennara sína af áhuga.Vísir/Smári Jökull Hvað er DNA? „Eitthvað um okkur, það er lítið um okkur hér,“ segir Írena Sólveig og bendir á tilraunaglas sem hún heldur á. „Við settum vatn upp í munninn og héldum því þar og snerum í hringi og gerðum svona ahhhhh,“ bætir Sóley Lóa um leið og hún sýnir hvernig hún fór að. „Svo þurftum við að setja svona uppþvottalög og hræra smá í og salt og hræra með því líka.“ „Eins og vorið sé bara komið“ Krakkarnir bralla ýmislegt spennandi í skólanum. „Við fórum að skoða fugla og þá gerðum við fuglahljóð. Þá áttum við að teikna á blað og sjá hvernig hljóðin yrðu. Hér er lóa, önd, lundi og músarindill,“ segir Freyja um leið og hún bendir á blað þar sem hún er búin að teikna tóna mismunandi fuglahljóða. Þær Freyja og Snælaug voru í óðaönn að læra um fuglahljóð.Vísir/Smári Jökull Hvaða fugl gerir skemmtilegasta hljóðið? „Mér finnst það alltaf vera lóan.“ Hvernig hljóð heyrist í henni? „Eins og vorið sé bara komið.“ Þarf að þekkja eitthvað til að geta þótt vænt um það Umsjónarmaður vísindaskólans segist vonast til að í hópi krakkanna finnist vísindamenn framtíðarinnar. Er mikilvægt að ýta náttúrunni og vísindum að börnunum? „Mjög svo, því fyrst og fremst held ég að maður þurfi að þekkja eitthvað til að geta þótt vænt um það. Með því að stuðla að því að þau séu úti og fái tækifæri til að gramsa í mold eftir ormum, þá fer þeim að þykja vænt um náttúruna,“ segir Hulda Margrét Birkisdóttir ein af umsjónarmönnum Vísindaskólans. Hulda Margrét Birkisdóttir er ein af umsjónarmönnum Vísindaskóla Náttúrusafns Kópavogs.Vísir/Smári Jökull Þá hefur skólanum áskotnast maurabú sem nokkrir strákar voru að skoða í smásjá. „Það er líka ein drottning þarna. Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir,“ sögu þeir Dagur, Bóas, Ingvar og Hafsteinn brosandi.
Börn og uppeldi Vísindi Kópavogur Krakkar Dýr Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira