Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Freyja Þórisdóttir skrifar 8. júlí 2026 12:22 Útvarpsmaðurinn Daníel Baróns og barþjóninn Ási á Food and Fun-ráðstefnunni í Turku árið 2015. Aðsend Kokteilbarinn Resident Room er opnaður í dag, miðvikudaginn 8. júlí, dyr sínar að Hverfisgötu 26 þar sem veitingastaðurinn Matbar var áður til húsa. Það eru útvarpsþáttastjórnandinn Daníel Jón Baróns sem starfar á Rás 2 og barþjónninn Ásgeir Már Björnsson, sem er nýfluttur aftur heim eftir að hafa starfað lengi erlendis, sem stýra barnum en þeir ætla sér að „hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni“.
Þeir Daníel, betur þekktur sem Danni, og Ásgeir, af flestum kallaður Ási, hafa báðir áratugareynslu úr skemmtanalífinu en þeir störfuðu lengi saman á Slippbarnum. Margir telja íslensku kokteilbyltinguna hafa hafist innan veggja staðarins og var það þar sem drykkir á borð við Basil gimlet stigu upp á kokteilastjörnuhimininn. Nafnið Resident Room er dregið af rýminu sem Danni segir vera mjög grand og að góð yfirsýn yfir það sé frá barnum. „Þetta er smá eins og bara svona stórt herbergi og býður upp á svona nett heimilislega nálgun, smá bara svona eins og þú værir að fá fólk yfir bara í drykk bara svona heim til þín.“Aðsend „Megináhersla staðarins er lögð á framúrskarandi kokteila, vandlega valið vínúrval og glæsilega „hamingjustund“ en einnig verður boðið upp á létta rétti,“ segir þar og jafnframt kemur fram að „hann sé því tilvalinn jafnt fyrir eftirvinnudrykkinn sem og notalegt kvöld í góðra vina hópi“. Mjúk opnun í kvöld og húllumhæ seinna Danni segir undirbúning fyrir opnunina hafa gengið mjög vel og að rýmið sé fullkomið fyrir andrúmsloftið sem þeir séu að sækjast eftir að skapa. „Það er bara búið að ganga sjúklega vel og þetta var ógeðslega flott rými og gert fyrir svona franskan stíl,“ segir hann og bætir við að hann telji eflaust marga hafa litið rýmið hýru auga eftir að í ljós kom að Mat bar væri allur. Um leið og Ási hafi sagst ætla að flytja aftur heim til Íslands hafi þeir Danni farið að ræða mögulegt samstarf í rýminu. Eitt af því sem þeir Danni og Ási lögðust fyrst yfir var kokteilseðill staðarins.Aðsend. „Um leið og hann gaf í skyn að hann væri að fara flytja til Íslands, þá sendi ég á hann,“ segir Danni. Svo hafi þetta rými fallið í þeirra hendur og þannig hafi boltinn farið að rúlla. Klukkan 16:00 í dag verður svokölluð „mjúk opnun“ á staðnum segir Danni en þá á hann við að það sé ekki eiginlegt opnunarpartý. „Málið með þessa „mjúku opnun“ er bara að við erum ekki að byrja með opnunarpartí en við erum að sigla af stað og svo verður eitthvað húllumhæ seinna meir. Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst í rauninni og fá fólk yfir í huggulegheit.“ Í tilkynningu um opnunina segir að Resident Room sé sérstaklega hugsaður fyrir þrjátíu ára og eldri. Opnunartími staðarins verði frá klukkan 16:00 til 01:00 frá miðvikudögum og fram yfir helgi. Hann segist hafa hlakkað mikið til og að þeir Ási vonist til að sjá sem flesta í kvöld.
Veitingastaðir Drykkir Áfengi Reykjavík Tímamót Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Sjá meira