Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson, Hermann Arnar Austmar, Dagný Hróbjartsdóttir, Héðinn Svarfdal Björnsson, Karen Kristine Pye, Kristófer Nökkvi Sigurðsson, Kristín Ólöf Grétarsdóttir, Salka Hauksdóttir, Sigvaldi Egill Lárusson, Stefán Þór Helgason og Stefán Karl Snorrason skrifa 8. júlí 2026 09:03 Í grunnskólum landsins eru að verða kaflaskil. Ný reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum markar tímamót í því hvernig við búum börnunum okkar heilbrigt og öruggt umhverfi á skólatíma. Við hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra fögnum þessu skrefi heils hugar. Við höfum lengi talað fyrir því að huga betur að stafrænu umhverfi og að skólar séu staður náms, leiks og samveru. Reglugerðin sem nú liggur fyrir er tímabær, vel útfærð og nauðsynleg. Hún samræmir reglur milli skóla, skapar námsfrið og styður við einbeitingu, félagsþroska og almenna velferð barna. Það eru einmitt þessir þættir sem skipta sköpum þegar kemur að líðan og árangri nemenda. Við viljum hrósa Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra sérstaklega fyrir að stíga þetta skref af festu. Það þarf kjark til að setja skýrar reglur um mál sem snerta daglegt líf tugþúsunda barna og fjölskyldna, og hér er það gert með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Við fögnum sömuleiðis ákvörðun Reykjavíkurborgar um að símafriður taki strax gildi í grunnskólum borgarinnar frá og með næsta hausti. Þar sýnir borgin frumkvæði og ábyrgð sem önnur sveitarfélög mega gjarnan taka sér til fyrirmyndar. Reynslan, bæði hér heima og erlendis, talar skýru máli. Bandaríski félagssálfræðingurinn Jonathan Haidt ásamt fleirum hafa bent á hversu mikil áhrif símalaus skóladagur hefur á líðan, einbeitingu og félagsleg tengsl barna. Þegar símarnir eru ekki lengur fyrirferðarmiklir á skólatíma skapast rými fyrir nám, leik, hreyfingu, samtal og vináttu. Til að símafriður skili tilætluðum árangri viljum við leggja áherslu á nokkur atriði. Í fyrsta lagi skiptir máli að skýrt verði skilgreint hvað felst í hugtakinu símafriður þannig að framkvæmdin verði samræmd milli skóla og markmið hennar nái fram að ganga. Í öðru lagi þarf fræðsla að haldast í hendur við reglur. Börn, foreldrar og starfsfólk þarf að skilja hvers vegna þetta skiptir máli, ekki bara hvað má og hvað ekki. Í þriðja lagi þarf að huga vel að frímínútunum og skapa góðar aðstæður til leiks og samveru, svo skjálaus tími verði tækifæri en ekki tómarúm. Í fjórða lagi að símar og önnur snjalltæki í einkaeigu séu geymd í læstum skápum eða viðeigandi hirslum yfir allan skóladaginn. Jafnframt er mikilvægt að spjaldtölvur og önnur tæki sem skólinn útvegar nemendum verði ekki nýtt sem staðgenglar fyrir síma til afþreyingar. Slík tæki skulu eingöngu notuð í námslegum tilgangi og einungis á skilgreindum svæðum innan skólans. Við teljum líka að símafriður eigi að vera sýnilegur hluti af skólamenningunni og að hann nái helst til allra sem dvelja innan veggja skólans á skólatíma, líka fullorðinna. Börn læra ekki síst af fyrirmyndum, og við sem eldri erum þurfum að ganga á undan með góðu fordæmi í eigin tækninotkun. Þá hvetjum við til þess að sömu áherslur nái til íþróttafélaga og annarra sem starfa með börnum, svo skilaboðin verði samræmd í öllu umhverfi barnanna. Símafriður er ekki átak gegn tækni. Hann snýst um að gefa börnum svigrúm til að vera börn að læra, leika og tengjast hvert öðru án stöðugra truflana. Þetta er sameiginlegt verkefni foreldra, skóla, sveitarfélaga og stjórnvalda, og árangurinn veltur á því að við vinnum saman. Heimili og skóli lýsa yfir eindregnum stuðningi við reglugerðina og eru reiðubúin til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld, skólasamfélagið og foreldra um innleiðingu hennar. Velferð og öryggi barnanna okkar er og verður ávallt í fyrirrúmi. Höfundar eru meðlimir í stjórn Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Símanotkun barna Börn og uppeldi Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar