Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar 3. júlí 2026 13:31 „Saka ráðherra um sýndarsamráð“. Þannig hljómaði fyrirsögn fréttar hjá RÚV, á dögunum. Vísað er í orð ungs fólks sem tók þátt í vinnustofu um símanotkun í skólum og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, á vegum barna- og menntamálaráðherra. Ungmennin eru fulltrúar Ungheilla, raddar unga fólksins hjá Barnaheillum, en vinnustofuna sótti ungt fólk víðs vegar að af landinu. Viðbrögð ráðherra, Ingu Sæland, eru skýr og hún segir rangt að ekki hafi verið tekið mið af tillögum ungmenna sem tóku þátt í vinnustofunni, en segir jafnframt að henni þyki „...miður að ungmennin upplifi málið á þennan hátt“. Er eitthvað sem hefði mátt gera öðruvísi, þannig að ungmennin hefðu upplifað að þau væru með þátttöku sinni að hafa raunveruleg áhrif og upplýsingar sem fengust úr vinnustofunni hefðu nýst ráðherra við mótun reglugerðarinnar? Hér á eftir verður reynt að svara þessari spurningu, út frá grunngildum um vandað samráð, en tekið skal fram að þessi grein byggir eingöngu á því sem komið hefur fram í fjölmiðlum. Hverju var lofað? Ljóst var frá upphafi að tilefni vinnustofunnar væri reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskóla. Þannig er vísað í ákveðna ákvörðun, sem í vönduðu samráði er mikilvægt að liggi fyrir áður en lagt er af stað. En ef ráðherra hafði þá þegar ákveðið að símanotkun yrði alfarið bönnuð, hefði það þurft að koma fram í upplýsingum í boði á vinnustofuna. Ungmennin hefðu líka þurft að fá að vita til hvers væri ætlast af þeim og hversu mikil völd þau hefðu. Átti bara að gefa þeim kost á að tjá sig, en ekki lofa að hlusta? Vildi ráðherra fá þeirra hugmyndir um valkosti eða jafnvel forgangsröðun? Var ljóst að þeirra skilaboð væru bara hluti af því sem tekið yrði tillit til og að sérfræðingar ráðuneytisins og annað fagfólk ætti líka aðkomu? Allt þetta þarf að fara yfir, áður en boðið er að borðinu. Hluti af faglegum undirbúningi fyrir samráð, er að skilgreina svokallað „stig þátttöku“ sem snýst m.a. um hvaða væntingar er verið að skapa. Það er í samræmi við alþjóðleg viðmið um íbúasamráð / þátttöku almennings, sem t.d. er að finna í handbók Sambands sveitarfélaga um íbúasamráð í sveitarfélögum og þátttöku íbúa. Gott samtal er ekki nóg Það er ekki nóg að eiga frábært samtal á fundi eða vinnustofu. Aðalmálið er, hvað gerist svo í framhaldinu og hvort og hvernig þau sem tóku þátt, fá að vita hvað kom út úr vinnustofunni og hvernig það nýttist við að setja saman reglugerðina. Hafi ungmennunum verið lofað að tekið yrði tillit til skilaboða þeirra, eiga þau að sjá það endurspeglast í reglugerðinni. Sem þau virðast ekki gera. Kannski var engu lofað, en þau gáfu sér að það yrði hlustað, fyrst á annað borð var verið að bjóða þeim að borðinu. Á vinnustofu heyrast margar og ólíkar raddir og mikilvægt að greina hver meginskilaboðin eru. Kannski hefði mátt vinna samantekt um skilaboð þátttakenda vinnustofunnar, kynna þeim og sýna síðan fram á hvort og hvernig það sem fram kom nýttist inn í reglugerðina og hvað ekki og hvers vegna. Samráð tryggir ekki endilega samhljóm eða að öll verði sammála og jafnvel vandað samráð er stundum kallað sýndarsamráð. Þá er það oft vegna þess að þau sem eiga mikilla (fjárhagslegra) hagsmuna að gæta eru ósátt við niðurstöðuna og grípa til þess að ásaka stjórnvöld um sýndarsamráð. Í þessu tilfelli eru ungmennin ekki hagsmunaaðilar í þeim skilningi. Þau einfaldlega hafa áhuga á að koma að borðinu í þeim málefnum sem varðar þau. Mikið í húfi „Lætur neikvæðni barna ekki stoppa sig“, er fyrirsögn í frétt RÚV, þar sem ráðherra svarar gagnrýni fulltrúa Ungheilla. Þar segir: „Inga gaf í skyn að vegna þeirrar neikvæðni sem hún hefði upplifað í kjölfar umræðunnar, verði börn ekki höfð með í ráðum næst“. Ungmennin eru einfaldlega að láta vita af því að þau upplifa að ekki hafi verið á þau hlustað. Með því afgreiða það sem „neikvæðni“ er lokað fyrir hlustun. Aftur. „Það er kallað eftir okkar skoðunum, við mætum og tökum tímann okkar...“, segir annar fulltrúanna sem rætt er við og hún nefnir líka að ungmenni séu spennt fyrir að hafa raunveruleg áhrif. Það sem hér er í húfi, er ekki bara áhugi ungs fólks á að taka þátt, neisti þeirra, hugmyndir og trú á framtíðina, heldur líka traust til stjórnvalda, til skemmri og mögulega lengri tíma. Og sú spurning vaknar hvort hér hafi samráðið mögulega spillt fyrir þegar kemur að framkvæmd reglugerðarinnar úti í grunnskólum landsins. Sýndarsamráð? Var þetta sýndarsamráð? Hér skal farið varlega í að draga slíkar ályktanir, eingöngu út frá umfjöllun fjölmiðla. Tvennt blasir þó við. Annars vegar virðist vanta einlæga hlustun. Hins vegar að þetta samtal við ungmennin, sem sjálfsagt var boðið upp á í góðum hug, hefði þurft að undirbyggja betur, allt frá upphafi til eftirfylgni. Slík þekking þarf að verða til inni í ráðuneytum og stofnunum. Höfundur hefur starfað við íbúasamráð í 25 ár. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Samfélagsmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar