Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 2. júlí 2026 13:32 Páll Gunnar er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Vísir/Arnar Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi.
Samkeppniseftirlitið kallar eftir sjónarmiðum olíufélaganna í umræðuskjali um þróun á eldsneytismarkaði um niðurstöðu greiningar SKE og vísbendingum sem eru útlistaðar í skjalinu. Umræðuskjalið byggir á ítarlegri gagnaöflun frá olíufélögunum og greiningu eftirlitsins á þeim. Í því segir að álagning á bensíni og dísil hafi hækkað verulega á síðustu árum og að verðmunur á Íslandi og öðrum Evrópuríkjum hafi aukist á síðustu árum. Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins. „Þegar við horfum á samanburð við nágrannalöndin og þær upplýsingar eru tiltækar þá er þetta meira en maður hefði vonast eftir. Í heildina styður umræðuskjalið okkar og frumniðurstöður okkar þær áhyggjur sem FÍB, ASÍ og fleiri hafa verið að viðra á undanförnum misserum.“ Liðist árum saman að bjóða óeðlilega há verð Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir frumniðurstöðu eftirlitsins ekki koma á óvart. „Þetta er bara sú mynd sem við höfum séð byggjast upp á íslenska eldsneytismarkaðnum. Þetta er því miður fákeppnisumhverfi og hér hefur liðist árum saman að bjóða neytendum upp á óeðlilega há verð.“ Í skjalinu kemur fram að greining eftirlitsins bendi til þess að nokkur olíufélög hafi gripið til verðhækkana rétt fyrir gildistöku skattalækkunarinnar sem stjórnvöld gripu til í þeim tilgangi að ná tökum á verðbólgu og koma í veg fyrir að kjarasamningar losni í haust. SKE kallar eftir viðbrögðum olíufélaganna við þessu. „Það er auðvitað mjög alvarlegt,“ segir Runólfur og heldur áfram. „Við sáum ekkert ósvipaða sögu í aðdraganda þess að kerfisbreyting varð um síðustu áramót þegar farið var úr því að vera með eldsneytisgjöld í bensínlítranum og dísillítranum yfir í það að taka upp svokallað kílómetragjald. Þá var greinilegt að olíufélögin voru að halda í sér varðandi breytingar á verðlagi þó að það væri jákvæð þróun á heimsmarkaði og gengi íslensku krónunnar væri sterkt. Þetta er aðferðafræði sem menn þekkja á þessum bæ, það er einn sem leiðir og hinir elta, því miður,“ segir Runólfur. Hafa heimildir til stjórnvaldssekta Páll Gunnar var spurður hvort gripið yrði til aðgerða ef það reynist svo að frumniðurstöðurnar séu réttar eftir framkomnar athugasemdir frá olíufélögunum. „Hvað varðar eftirfylgni við skattalækkunina þá kvað löggjafinn á um heimildir Samkeppniseftirlitsins til þess að leggja stjórnvaldssektir á fyrirtæki en við erum auðvitað ekki komin þangað. Við þurfum að fá frekari skýringar áður en við förum að mynda okkur skoðun á því. Síðan er líka gert ráð fyrir skýrslugjöf til ráðherra sem getur þá gripið til aðgerða en utan við það þá bendir þetta umræðuskjal og þessar upplýsingar allar saman til þess að við þurfum að taka dýpri umræðu um verðlagningu á eldsneyti á Íslandi og með hvaða hætti við gætum búið við hagstæðari aðstæður. Það eru ýmis tæki sem hægt er að grípa til sem nágrannaríki hafa líka prófað og við þurfum líka að huga að því,“ segir Páll Gunnar Pálsson.
Samkeppnismál Bensín og olía Neytendur Tengdar fréttir Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar. 2. júlí 2026 10:35 Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Fleiri fréttir Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Sjá meira
Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Ekki er hægt að fullyrða að virðisaukaskattslækkun eldsneytis hafi í öllum tilvikum skilað sér að fullu í endanlegu útsöluverði þess samkvæmt nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins. Ýmsum spurningum sé enn ósvarað. Einhver olíufélög hækkuðu verðið dagana fyrir gildistöku skattalækkunarinnar. 2. júlí 2026 10:35