Hætta á að námsframboð dragist saman Bjarki Sigurðsson skrifar 27. júní 2026 17:16 Berglind Ósk Guðmundsdóttir er bæjarstjóri Akureyrarbæjar. Vísir/Viktor Freyr Bæjarstjóri Akureyrar segir eftirspurn eftir námi í bænum meiri en kerfið ræður við. Ríkið þurfi að grípa til aðgerða og styðja við menntastofnanir bæjarins. Hætta sé á að námsframboð dragist saman.
Á Akureyri má finna þrjár ríkisreknar menntastofnanir, menntaskóla, verkmenntaskóla og háskóla. Á brautskráningarhátíð menntaskólans 17. júní gagnrýndi Karl Frímannsson skólameistari stjórnvöld harðlega og sagði aðgerðarleysi og úrræðaleysi hafa ráðið för varðandi framhaldsskólastigið á þessari öld. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri Akureyrarbæjar, tekur undir með skólameistaranum. „Undanfarið hefur halli verið mikill á framhaldsskólastiginu í heild sinni. Nú er verið að gera kröfu um frekari niðurskurð og áfram til næstu ára. Það gefur augaleið að það þýði að þurfi að skera niður fjármagn til náms. Það er einmitt það sem við þurfum að vernda, námsframboðið sem við höfum hér til staðar. Svo fólk geti sótt sér menntun í sinni heimabyggð, það er lykilatriði,“ segir Berglind. Ár hvert þurfi að vísa verknámsnemendum frá við verkmenntaskólann og því þurfi að byggja viðbyggingu við skólann. „Það er bara krafa frá atvinnulífinu að það séu fleiri iðnmenntaðir. Það eru mörg flott verkefni í gangi um allt land sem krefjast þess að við séum með fleiri iðnmenntaða einstaklinga,“ segir Berglind. Háskólinn í bænum sé sívinsælli, til að mynda sóttu yfir þrjú hundruð manns um að hefja nám í hjúkrunarfræði við skólann í haust. „Það er bara gríðarlega jákvætt að sjá að Háskólinn á Akureyri stækkar og stækkar og aðsóknin er mikil. Það er ákveðinn gæðastimpill yfir náminu og stofnuninni. Því er hægt að fagna en það er alvarlegt mál ef fjármagn fylgir ekki þessum nemendum og þeim tækifærum sem felast í því að mennta fleiri í þeim greinum þar sem vantar fólk,“ segir Berglind.
Skóla- og menntamál Háskólar Framhaldsskólar Akureyri Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira