Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. júní 2026 16:00 Hildur Björnsdótttir er borgarstjóri Reykjavíkur. vísir/vilhelm Nýr meirihluti Reykjavíkurborgar reiknar með að spara um 300 milljónir á ári hverju á grundvelli hópuppsagnar sem ráðist var í í dag. Starfsfólki á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara fækkar um 40 prósent. Átján störf verða lögð niður og níu störf færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. „
Borgarráð samþykkti í dag umfangsmiklar skipulagsbreytingar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Tillögurnar eru liður í markmiðum stýrihóps meirihlutans um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Markmið breytinganna er að einfalda stjórnsýslu, stytta boðleiðir, draga úr yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Um leið verði staðið vörð um framlínuþjónustu.“ Þetta segir í skriflegri yfirlýsingu frá Reykjavíkurborg en hún er undirrituð af borgarritara Þorsteini Gunnarssyni. Eins og greint hefur verið frá var samþykkt á fundi borgarráðs í dag að leggja niður svið samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg og mannréttindaskrifstofu borgarinnar. Um tuttugu manns hefur verið sagt upp. Í tilkynningu frá borginni segir að breytingarnar hafi áhrif á 27 stöðugildi af 42 á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara en þar undir heyra skrifstofa samskipta og viðburða og mannréttindaskrifstofa. Níu störf eru færð milli sviða en átján störf lögð niður. Eftir því sem fram kemur er gert ráð fyrir því að ráðið verði í einhver af nýjum stöðum eftir því sem innleiðingunni vindur fram. Þá verður einhverjum verkefnum útvistað. „Starfsfólki skrifstofunnar mun eftir að breytingar hafa að fullu komist til framkvæmda, hafa fækkað um minnst 40%. Um hópuppsögn er að ræða og hefur Vinnumálastofnun verið upplýst,“ segir í tilkynningunni. Borgin reiknar með að umræddar breytingar muni lækka rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ári hverju. „„Ég hét því að gera breytingar og taka til hendinni í rekstri borgarinnar. Það er eðlilegt að ég horfi fyrst til þeirra verkefna sem standa mér næst í þeim efnum, hér á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. Þessar ákvarðanir eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð. Rekstur borgarinnar stendur hins vegar að óbreyttu ekki undir lögbundinni þjónustu, nauðsynlegum fjárfestingum og mikilvægu viðhaldi innviða. Þess vegna reynast þessar aðgerðir nauðsynlegar,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur í tilkynningunni. Þá kemur fram að samhliða hópuppsögninni verði skerpt á ráðningarbanni og viðveruskyldu innan miðlægrar stjórnsýslu. Þá er stefnt að því að draga úr ferðalögum borgarstarfsmanna. Þá verður því fyrirkomulagi komið fyrir að ferðaheimildir þurfa að vera samþykktar af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. „Gert er ráð fyrir að ofangreindar breytingar taki gildi frá og með 1. júlí nk. Á næstu vikum og mánuðum munu frekari tillögur er snúa að öðrum þáttum í rekstri borgarinnar verða kynntar af hagræðingarhópi borgarstjóra sem er að störfum.“ Frétt er í vinnslu.
Reykjavík Mest lesið Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Innlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Fleiri fréttir Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Mannréttindi ekkert fitulag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Sjá meira