Foreldrar Sólons óska eftir skýrslutökum yfir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair Birgir Olgeirsson skrifar 16. júní 2026 15:31 Héraðsdómur Reykjaness vísaði meiðyrðamáli foreldra Sólons gegn Icelandair frá dómi í lok maí. Frávísunin fól ekki í sér efnislega niðurstöðu um þær kröfur sem foreldrar Sólons höfðu uppi í málinu. Vísir/Vilhelm Foreldrar Sólons Guðmundssonar heitins ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um frávísun meiðyrðamáls þeirra gegn Icelandair. Þau hyggjast þess í stað óska eftir skýrslutökum yfir meðal annars núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Icelandair. Markmiðið er að afla gagna áður en tekin verður ákvörðun um framhald málsins.
Þetta staðfestir Sævar Þór Jónsson, lögmaður foreldra Sólons, þeirra Rutar Ólafsdóttur og Guðmundar Þórðarsonar. Beiðnin verður lögð fram á grundvelli 12. kafla laga um meðferð einkamála, sem fjallar um öflun sönnunargagna án þess að mál hafi verið höfðað. Að sögn Sævars er óskað eftir munnlegum vitnisburði um málsmeðferð, samskipti og ákvarðanatöku hjá Icelandair í aðdraganda andláts Sólons. Héraðsdómur Reykjaness vísaði meiðyrðamáli foreldra Sólons gegn Icelandair frá dómi í lok maí. Frávísunin fól ekki í sér efnislega niðurstöðu um þær kröfur sem foreldrar Sólons höfðu uppi í málinu. Málið snerist um ummæli sem foreldrar Sólons töldu meiðandi í hans garð. Lögmaður þeirra sagði eftir úrskurðinn að niðurstaða dómsins lyti að því hvort málið yrði tekið til efnismeðferðar, en ekki að efni ágreiningsins sjálfs. Sævar Þór Jónsson lögmaður.vísir/vilhelm Sólon var 28 ára gamall flugmaður hjá Icelandair þegar hann lést í ágúst árið 2024. Hann hafði starfað hjá félaginu í um sex ár. Foreldrar Sólons hafa sagt að hann hafi í apríl 2024 lagt fram kvörtun til mannauðsdeildar Icelandair vegna framkomu samstarfskvenna og gagnrýnt málsmeðferð félagsins í aðdraganda starfsloka hans. Þau hafa jafnframt sagt að á fundi hjá Icelandair 22. ágúst 2024 hafi Sóloni verið greint frá nýjum ásökunum án þess að hann fengi að þeirra mati fullnægjandi upplýsingar um efni þeirra. Sólon lét af störfum hjá Icelandair daginn eftir fundinn. Tveimur dögum síðar fannst hann látinn. Icelandair hefur áður sagt að félaginu sé ekki heimilt að tjá sig um einstök starfsmannamál. Félagið hefur jafnframt sagt að það muni aðstoða yfirvöld eftir því sem unnt sé, fari málið í þar til gerðan farveg. Með beiðni um skýrslutökur hyggjast foreldrar Sólons nú freista þess að afla frekari gagna áður en ákvörðun verður tekin um næstu skref.
Dómsmál Icelandair Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira