„Smá þolinmæði sem þarf“ Árni Gísli Magnússon skrifar 14. júní 2026 19:15 Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, er að ná að snúa við gengi sinna manna. Vísir/Anton „Ég er mjög ánægður, sérstaklega með að fá þrjú stig á útivelli og glaður með að skora fjögur mörk og búa nokkuð af marktækifærum til þess að skora jafnvel enn fleiri mörk, ánægður með það, sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir sterkan 4-1 útisigur gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í 10. umferð Bestu deildar karla í dag.
Með sigrinum komu Eyjamenn sér upp úr fallsæti og höfðu sætaskipti við Þór sem var í tíunda sæti fyrir leikinn en Eyjamenn í því ellefta. „Við áttum mjög góðan leik bæði með og án boltans. Við ætluðum að vera mjög aggressívir og vegna þess bjuggum við til nokkur færi og eins og ég sagði þér fyrir leikinn; með boltann ætlum við að spila fram á við og ef mögulegt er að spila þá aftur fyrir þá og auðvitað var hugmyndin að skipta boltanum á milli kanta. Eins og þú sást örugglega komu fyrstu tvö mörkin úr því. Ég held við höfum svo fengið eitt færi í viðbót úr svoleiðis stöðu.“ Bjóstu við meiri mótstöðu frá Þórsliðinu en raun bar vitni? „Þeir áttu sín augnablik í leiknum og fengu nokkur góð færi. Þeir fóru hátt á völlinn og börðust og reyndu og áttu á endanum skilið að skora markið. Eins og ég sagði þér var ég mjög ánægður með mína stráka með boltann og einnig hvernig við vorum án boltans, mjög ánægður með það. Við vorum þéttir, með góða orku og vorum að pressa og áttum góð augnablik í leiknum.“ Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur ÍBV nú unnið tvo stóra sigra í síðustu tveimur leikjum, 6-1 gegn Keflavík og svo 4-1 gegn Þór í dag. „Ég veit ekki hvort þú ert sammála en ég held við höfum líka spilað nokkra góða leiki. Ég man að við spiluðum mjög vel gegn FH í fyrri hálfleik, spiluðum góðan leik gegn Val, við spiluðum fínan leik gegn Víkingi, við spiluðum góðan leik gegn Breiðablik en fengum engin stig fyrir það. Þetta er bara smá þolinmæði sem þarf og við höfum hana. Ætti fólk að byrja að horfa á leiki ÍBV til að sjá mörk? „Ég virkilega vona það, já,“ sagði Linta glaðbeittur að endingu.
Besta deild karla ÍBV Þór Akureyri Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira