Íslenski boltinn

Bestu-deildarpar á von á barni saman

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Barbára Sól Gísladóttir og Karl Friðleifur Gunnarsson með sónarmyndina.
Barbára Sól Gísladóttir og Karl Friðleifur Gunnarsson með sónarmyndina. @barbaragisladottir

Íslandsmeistaraparið og knattspyrnufólkið Barbára Sól Gísladóttir og Karl Friðleifur Gunnarsson sögðu frá miklum gleðifréttum á samfélagsmiðlum sínum.

Bestu-deildarparið á von á barni saman og Barbára Sól missir því af restinni af tímabilinu með Breiðabliki.

Barbára Sól varð Íslands- og bikarmeistari með Blikum í fyrra og skilur við liðið á toppi deildarinnar. Hún er lykilmaður hjá Blikum og verður örugglega sárt saknað.

Karl Friðleifur varð á sama tíma Íslandsmeistari með Víkingi en Víkingsliðið er einnig á toppnum í dag.

Barbára Sól birti mynd af þeim skötuhjúum saman með sónarmynd af barninu og undir skrifaði hún „Mamma & pabbi“. Hana má sjá hér fyrir neðan.

Vísir óskar þeim Barbáru og Karli til hamingju með barnalukkuna en vonumst jafnframt eftir því að sjá Barbáru Sól aftur inni á vellinum í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×