Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Árni Sæberg skrifar 10. júní 2026 10:03 Landlæknir hvetur til ítrustu varúðar við ávísun lyfja. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Frá 1. janúar 2024 til 31. maí 2026 lauk 64 eftirlitsmálum á lækna og tannlækna vegna lyfjaávísana. Einu máli lauk með takmörkun á starfsleyfi.
Í tilkynningu þess efnis á vef Embættis landlæknis segir að það hafi eftirlit með lyfjaávísunum heilbrigðisstarfsmanna. Eftirlitið byggi annars vegar á frumkvæðisathugunum þar sem lyfjagagnagrunnur embættisins sé notaður. Hins vegar sé um að ræða eftirlit á grundvelli ábendinga frá til dæmis apótekum, Sjúkratryggingum, Lyfjastofnun og heilbrigðisstarfsmönnum. Frá 1. janúar 2024 til 31. maí 2026 hafi 64 eftirlitsmálum á lækna og tannlækna vegna lyfjaávísana verið lokið. Í sumum tilvikum hafi um fleiri en eitt mál verið að ræða á sama einstaklinginn. Einu máli hafi lokið með takmörkun á starfsleyfi, 10 málum með áminningu og 24 málum með formlegum tilmælum til úrbóta. Viðurlagaúrræðum hafi ekki verið beitt í 25 málum. Þann 1. júní 2026 hafi 43 eftirlitsmál vegna lyfjaávísana verið í ferli hjá embætti landlæknis. „Embætti landlæknis hvetur til ítrustu varúðar við ávísun lyfja, jafnt ávana- og fíknilyfja til dæmis örvandi ADHD-lyfja, ópíóíða, svefnlyfja og slævandi lyfja, sem og annarra lyfja, ekki hvað síst lyfja sem þekkt er að rata mögulega í sölu á svörtum markaði. Má í því samhengi nefna Botox, Ozempic, testósterón og lyf við ristruflunum.“
Lyf Heilbrigðismál Embætti landlæknis Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira