Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar 8. júní 2026 14:33 Fjármálaráðherra mætir í viðtöl og talar um hækkandi vexti, þrjóska verðbólgu og aukinn samdrátt í formi fjöldauppsagna sem einhverja „óumflýjanlega niðurstöðu“. Hann viðurkennir þar með að hann sé varla starfi sínu vaxinn. En sannleikurinn er sá að þessi vandi er heimatilbúinn. Þar af leiðir er hann óumflýjanlegur á meðan skattahækkunargleði ríkisstjórnarinnar, gjarnan kölluð „aðhald á tekjuhlið” eða „lokun á alls kyns götum” er leiðin sem ríkisstjórnin hefur einsett sér að fara. Ríkisstjórnin er sjálf helsti brennuvargurinn á þessu verðbólgubáli! Muna menn eftir haustinu 2024? Þá sýndi þáverandi ríkisstjórn sem samanstóð af Sjálfstæðisflokki og Framsókn, eftir brotthvarf Vinstri grænna úr stjórninni,í verki að hægt var að ná niður vöxtum og verðbólgu með því að lofa að opinberar gjaldskrár hækkuðu ekki umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Það tók hins vegar nýja ríkisstjórn, Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins örfáar vikur eða mánuði að hverfa af þeirri braut. Með nýrri fjármálaáætlun, kílómetragjöldum og stórfelldum gjaldskrárhækkunum um síðustu áramót keyrði ríkisstjórnin hækkanirnar langt umfram öll markmið. Með þessari takmarkalausu gjaldafíkn er ríkið beinlínis að LEIÐA verðbólguvæntingarnar í landinu. Þegar ríkið hækkar allt, hvers vegna ættu fyrirtæki og verslanir að halda aftur af sér, þar Sem ríkið með sitt hækkunarblæti eykur rekstrarkostnað þeirra? Kostnaðurinn af hækkununum smitast auðvitað beint út í verðlagið og Seðlabankinn er skilinn einn eftir á vígvellinum með það eina tól að kæla hagkerfið með okurvöxtum á heimilin og fyrirtækin í landiu. Að ætla að skila hallalausum ríkissjóði með því að kyrkja atvinnulífið og heimilin, með glórulausum gjaldskrárhækkunum, er efnahagslegur galskapur og í raun fullreynd leið sem ætíð mistekst. Leiðin að hallalausum ríkissjóði er ekki gjalda- og skattafíkn, heldur að gefa fólki og fyrirtækjum súrefni til að skapa verðmæti. Ef ríkið myndi t.d. lækka matarskattinn myndu ráðstöfunartekjur heimilanna aukast og Færast yfir í aðra þjónustu og verslun. Það myndi stækka skattstofnana á sjálfbæran hátt og slá á verðbólguna samstundis. Það er kominn tími til að stjórnvöld hætti að senda heimilunum og fyrirtækjunum í landinu reikninginn fyrir eigin rekstrarvanhæfni. Hættið að hella olíu á bálið! Höfundur er formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Karl Brynjarsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar