Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júní 2026 11:04 Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. Sigurjón Ragnar Samkomulag hefur verið undirritað um samstarf vegna hagsmunagæslu landaheitisins Ísland eða Iceland. Markmið samstarfsins er að vernda ímynd Íslands og gæta hagsmuna íslenskra útflutningsgreina þegar landaheitið er notað við markaðssetningu á erlendum markaði.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá Íslandsstofu. Samkomulagið hefur verið undirritað af fulltrúum utanríkisráðuneytisins, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Samtaka atvinnulífsins, Hugverkastofunnar, Icelandic Trademark Holding ehf. og Íslandsstofu. „Það er Íslandi mjög mikilvægt að við verndum áfram okkar dýrmæta landaheiti sem Ísland er og tryggjum að það sé ekki misnotað. Ég fagna því að aðilar sameinist nú um að byggja áfram á þeirri góðu vinnu sem þegar hefur verið unnin á þessu sviði. Ég er þess fullviss að samstarf atvinnulífs og stjórnvalda muni efla enn frekar vernd og vöktun landaheitisins Ísland og þar með hagsmuni íslensks atvinnulífs,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Samstarfið byggir meðal annars á reynslu íslenskra stjórnvalda af langvarandi vörumerkjadeilu við bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods, þar sem niðurstaðan varð Íslandi í hag. Í kjölfar undirritunar samnings verður starfrækt fagráð en hlutverk þess er að móta verklag, veita faglegan stuðning og gæta hagsmuna íslensks útflutnings, segir í tilkynningunni. Einnig mun fara fram vöktun á vörumerkjaskráningu erlendis sem inniheldur Ísland, Iceland eða tengd heiti og stjórnvöld munu beita sér á alþjóðavettvangi fyrir því að landaheiti verði almennt ekki einkavædd í vörumerkjarétti. Vefgátt á heimasíðu Íslandsstofu hefur verið opnuð þar sem almenningur, fyrirtæki og stofnanir geta sent inn ábendingar um mögulega misnotkun landaheitisins erlendis. Íslandsstofa tekur þar við ábendingunum og metur tilefni til aðgerða í samráði við aðila átaksins.
Utanríkismál Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira