Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júní 2026 14:01 Guðmundur Felix Grétarsson segir það ótrúlega tilfinningu að geta gert hversdagslega hluti eins og að slá grasið. Vísir/Vilhelm Guðmundur Felix Grétarsson, sem missti báða handleggi árið 1998 í vinnuslysi og fékk ágrædda handleggi árið 2021, reynir nú að koma sér aftur á vinnumarkað og segir það ekki hafa verið mögulegt án aðgerðarinnar. Guðmundur ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu frá Strassborg, þar sem hann er búsettur, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Guðmundur, sem starfaði áður sem rafveituvirki, segir blendnar tilfinningar fylgja því að fara aftur á vinnumarkað, fimm árum eftir handaágræðsluna. „Það er svolítill ótti þegar maður er búinn að vera hálf ónýtur öll þessi ár sko, en það er líka rosa spenna og gaman að sjá hvort þetta gangi upp,“ segir Guðmundur Felix. Hann segir síðasta ár hafa verið mjög erfitt. „Ég fór í fjórar aðgerðir á síðasta ári og ég grenntist um einhver tíu, fimmtán kíló og var bara einhvern veginn alveg í rusli sko.“ Hann segir hendurnar þreytast hraðar en aðrir vöðvar en hann finni þó fyrir auknum styrk og getu og virðist líta á stöðuna bjartsýnum augum. „Ég [er] að læra kannski betur að nota það sem ég hef,“ segir hann. Guðmundur segir það ótrúlega tilfinningu að geta gert hluti sem honum hefur ekki tekist að gera í tæp 30 ár. Guðmundur slær nú grasið og sinnir beðum í garðinum sínum sem eru meðal verkefna sem hann var búinn að afskrifa að hann gæti nokkurn tímann sinnt. Hann segir andlegu hlið aðgerðarinnar stóran hluta hennar og segir suma kafla í kjölfar aðgerðar hafa verið ofboðslega erfiða. Miklu máli skipti að þeir sem gangist undir slíkar aðgerðir hafi gott stuðningsnet í kringum sig. Fyrsta hluta ferlisins segir hann hafa verið sálfræðimat og að enginn sé samþykktur í slíkt nema að „grunnurinn sé í lagi“. Guðmundur Felix eignaðist nýtt afabarn á síðustu dögum og ætlar að heimsækja nýjasta afkomandann í sumar.
Íslendingar erlendis Handleggir græddir á Guðmund Felix Bítið Heilbrigðismál Tengdar fréttir „Líkaminn er að hafna handleggnum“ Guðmundur Felix Grétarsson greinir í dag frá bakslagi eftir ígræðsluna á handleggjunum fyrir rúmum tveimur árum. Líkaminn er byrjaður að hafna handleggjunum og möguleiki er á að hann missi þá. 27. apríl 2023 13:10 Guðmundur Felix fór aftur í aðgerð í gærkvöldi Guðmundur Felix Grétarsson var sendur í aðra aðgerð á handlegg í gærkvöldi vegna höfnunar líkama hans á handleggjunum sem græddir voru á hann fyrir tveimur árum. Hann hafði áður farið í aðgerð á laugardagskvöld en jafnaði sig ekki nægilega vel. 1. maí 2023 19:56 Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Fleiri fréttir Í kossaflensi á listasýningu Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Sjá meira
„Líkaminn er að hafna handleggnum“ Guðmundur Felix Grétarsson greinir í dag frá bakslagi eftir ígræðsluna á handleggjunum fyrir rúmum tveimur árum. Líkaminn er byrjaður að hafna handleggjunum og möguleiki er á að hann missi þá. 27. apríl 2023 13:10
Guðmundur Felix fór aftur í aðgerð í gærkvöldi Guðmundur Felix Grétarsson var sendur í aðra aðgerð á handlegg í gærkvöldi vegna höfnunar líkama hans á handleggjunum sem græddir voru á hann fyrir tveimur árum. Hann hafði áður farið í aðgerð á laugardagskvöld en jafnaði sig ekki nægilega vel. 1. maí 2023 19:56