Sport

Mis­tök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Towns og Wembanyama hafa háð harða baráttu.
Towns og Wembanyama hafa háð harða baráttu. Gregory Shamus/Getty Images

New York Knicks unnu annan sigur gegn San Antonio Spurs í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar. 105-104 urðu lokatölur og Knicks halda heim til New York með 2-0 forystu.

Knicks eru nú aðeins tveimur sigrum frá sínum fyrsta meistaratitli í rúm fimmtíu ár. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem lið tekst að vinna fyrstu tvo leiki úrslitaeinvígisins á útivelli. Chicago Bulls gerðu það 1993 og Houston Rockets léku afrekið eftir 1995. Bæði lið urðu meistarar.

Eftir hörkuspennandi leik milli Knicks og Spurs í nótt réðust úrslitin í lokasókninni.

Leikurinn var jafn þegar Victor Wembanyama greip mikilvægt frákast fyrir Spurs en kastaði boltanum frá sér í óðagoti. Hann hitti ekki samherja og þurfti þá að brjóta á Jalen Brunson.

Brunson skoraði úr fyrra vítinu og náði eins stigs forystu fyrir Knicks. Wembanyama tókst síðan ekki að hitta úr lokaskoti leiksins sem má sjá hér fyrir neðan.

Spurs höfðu barist til baka í fjórða leikhluta eftir að hafa verið fjórtán stigum undir. Wembanyama fór fremstur í flokki í því áhlaupi og skoraði tíu stig en á endanum kom allt fyrir ekki.

„Þetta er mest pirrandi hlutur í heimi, að kasta leiknum frá sér eftir að hafa lagt inn alla þessa vinnu. Ég kastaði leiknum. Ég klúðraði. Stundum er eins og líkaminn hreyfi sig hraðar en hugurinn. Við þurftum að vinna þennan leik. Þetta var okkar leikur.

En nú er þetta bara búið. Mun ég sjá eftir þessu? Auðvitað. Mun ég nota þetta sem eldsneyti inn í næsta leik? Að sjálfsögðu,“ sagði Wembanyama við ESPN eftir leik.

Á hinum endanum átti Karl Anthony Towns frábæran leik fyrir Knicks, skoraði 21 stig og greip 13 fráköst. Mikal Bridges og Jalen Brunson fylgdu honum eftir með sitt hvor 20 stigin.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×