Bakgarðsáskorunin: Málgleðin helsti veikleikinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. október 2026 09:00 Guðjón er landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Guðjón Ingi Sigurðsson er einn hlauparanna.
Guðjón Ingi er 48 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Guðjón Ingi hefur mest farið 43 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Ég byrjaði aftur að hlaupa 2019 en svo 2022 eitthvað markvisst. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Mitt fyrsta Bakgarðshlaup var í Öskjuhlíð 2022 þar sem mig og Almar vini mínum langaði að vita hvernig það væri að hlaupa 100 kilómetra, það var gaman og gekk vel. Ég hef tekið þátt sjö sinnum að ég held, þar af keppt þrisvar sinnum. Ein lauflétt sjálfa sem var tekin fyrir síðasta Bakgarðshlaup. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Fyrsta sólarhringinn er ég bara að spjalla við alla um allt og ekkert og tíminn þýtur áfram þar til maður er mögulega orðinn þreyttari í raddböndunum en í líkamanum. Fólk er mis hresst þegar líður á og eru umræðurnar allt frá því að vera kynnast fólki, léttleiki og hafa gaman yfir í mjög djúpar samræður og að peppa þá sem eru komnir í djúpa dali. Ég þekki liðsfélagana mis mikið en flesta nóg til að geta rætt við þá um allt, smá að velja týpuna eftir aðstæðum hverju sinni. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Snickers... alltaf besta bragðið! Ég borða mjög hollt dags daglega og ekkert rusl en þegar það er komið langt inní keppni og þú bara þarft orkuna sama hvaðan hún kemur þá hef ég fundið löngun fyrir því að borða allskonar bakarísstöff yfir í kex og allskonar annað drasl sem mig langar annars aldrei í - Bakgarðurinn getur verið risa 'að leyfa sér' hátíð! Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Ég hef kynnst því að Tommi Jac er með allskonar rusl með sér og hef ég notið góðs af því. Það er gott að vera með base nálægt Tomma og lærði af honum að því meira úrval af sætindum sem þú ert með því betri málum ertu í. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Hlaupin skipa mikilvægan sess í mínu lífi og hleyp fyrir eða eftir vinnu og brýt stundum upp vinnudaginn með að hlaupa á miðjum degi eftir því hvað er að gera hverju sinni. Þess utan er ég mikið fyrir útiveru hvort sem það er að fara á fjöll, hjóla, fara á skíði eða annað. Samvera með fjölskyldunni, ferðast, spila, spila á hljóðfæri, brasa í bústaðnum og allskonar. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Planið er að hlaupa eins lengi og líkaminn leyfir en ég hef ekki reynt það áður og verður áhugavert að sjá hverju það skilar. Guðjón hefur mest farið 43 hringi. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Ég veit ekki hvort það hafi verið sérstaklega vandræðalegt en það var svo sannarlega stressandi þegar ég tók þátt í mínum öðrum Bakgarði sem var í Heiðmörkinni og planið var að fara 100 mílur eftir að hafa farið 100 km um vorið. Þá var ég búinn að hlaupa allan tímann með Almari vini mínum en hann þurfti að hætta um miðja nótt vegna meiðsla og ákvað ég að hlaupa fyrsta hringinn án hans einn í myrkrinu. Ég átta mig á því eftir um 3 km að ég væri svo sannarlega ekki lengur í brautinni og í raun smá villtur þar sem ég hafði verið að hlaupa með einhverjum allann tímann fram að því og þekkti í raun ekki brautina. Ég garga útí loftið, sný við og ákvað þarna eftir um 140 km að ég ætli að negla í mark þar sem þetta væri hvort sem er minn síðasti hringur en næ inn fyrir tímamörk þrátt fyrir auka 1.5km og næ að klára markmiðið sem var 100 mílur. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Heiðmörkin er mín uppáhalds braut. Falleg náttúran í haustlitunum, fjölbreytt, mjúkt undirlag og kyrrð í myrkrinu. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Það er erfitt að segja hver muni koma mest á óvart. Margir nýjir að koma inní liðið í ár og held ég að eitt af þeim muni koma mest á óvart. Ég held að það verði mikið um persónulegar bætingar. Guðjón er mikill hlaupagarpur. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Minn styrkleiki er án efa hausinn. Hugurinn leitar alltaf inní næsta hring og þarf lítið til að sannfæra mig um að þetta sé alveg frábær hugmynd! Veikleikinn gæti verið að ég get talað mikið á hlaupum og gæti það haft áhrif á öndun og þrek til lengdar en það er svo á móti jákvætt fyrir andlegu hliðina. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Það var í Heiðmörkinni 2025 í seinni nóttinni að ég var byrjaður að telja skrefin fyrir hvern kílómetra og giska á skrefafjöldann!Mér var líklega farið að leiðast smá þá en glaðvakandi og í toppstandi. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Ég ætla að vera duglegastur að hvetja fólk áfram. Þá fæ ég að tala á sama tíma og ég held mér betur við efnið. En við munum öll hjálpast að eins og alvöru liði sæmir. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Welcome To The Jungle Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Rólegur, hress, hugulsamur, tillitsamur með skert tímaskyn! Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Reyna að sofa, borða vel, slaka vel á til að róa taugakerfið og ef þú þarft að ganga að þá gera það í Oofos endurheimtar inniskóm. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Við munum öll syngja í keppninni, mætið til að missa ekki af því. En svona alveg uppúr þurru og algjörlega óumbeðið þá er það auðvitað Mari eða Tommi. Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Lið ársins 2026
Bakgarðshlaup Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Fleiri fréttir Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Bakgarðsáskorunin: Málgleðin helsti veikleikinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Dagskráin í dag: Liverpool, Man. City, PSG og Real í Meistaradeild Evrópu Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ „Ég tek því hlutverki sem mér er gefið“ Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut „Það eru þið og sagnfræðingar sem skrifið um fortíðina“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Sá besti óvænt orðaður við brottför Brottrekstrarsök að tapa þessari stöðu Sjá meira