Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Árni Sæberg og Sigurgeir Þorkelsson skrifa 5. júní 2026 16:38 Kjartan Smári Höskuldsson hefur verið framkvæmdastjóri Íslandssjóða frá árinu 2016. Íslandsbanki Kjartan Smári Höskuldsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Íslandssjóða.
Í tilkynningu þess efnis á vef Íslandsbanka, eiganda Íslandssjóða, segir að hann hafi tekið við starfinu árið 2016 og síðan þá leitt félagið í gegnum mikilvægan vöxt og uppbyggingu. Íslandssjóðir séu í dag eitt stærsta og öflugasta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, með 387 milljarða króna í stýringu í lok síðasta árs. Kjartan Smári verði félaginu og starfsfólki þess áfram innan handar næstu mánuði til að tryggja farsæla yfirfærslu verkefna. Kjartan hafði nýlega haft uppi stór orð um kjaradeilu Icelandair og flugmanna þar sem hann sagði þá halda félaginu í gíslingu og það stefndi að óbreyttu í gjaldþrot eftir samanlagt tugmilljarða tap yfir síðustu ár. „Í öllum öðrum fyrirtækjum væru starfsmenn sem tækju þátt í slíku einfaldlega reknir með skít og skömm. Og látnir sæta ábyrgð,“ sagði Kjartan í pistlinum sem birtist á Facebook-síðu hans. Vísar hann hér til meintra óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna þar sem þeir hættu um tíma að selja frídaga sína til fyrirtækisins þegar áhafnaskortur var. Halldóra Skúladóttir, forstöðumaður eignastýringar hjá Íslandssjóðum frá árinu 2017, taki við stöðu framkvæmdastjóra tímabundið þar til stjórn félagsins hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Hún búi yfir víðtækri reynslu af fjármálamarkaði og þekkingu á starfsemi félagsins. Áður hafi hún starfað sem forstöðumaður hjá Íslandsbanka og hafi alls 26 ára reynslu í greininni. Halldóra tekur tímabundið við starfi framkvæmdastjóra Íslandssjóða.Íslandsbanki
Íslandsbanki Vistaskipti Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira