Innlent

Ástralskur auðjöfur eig­andi snekkjunnar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Snekkja í Reykjavík
Snekkja í Reykjavík

Ástralski auðjöfurinn Ian Malouf er eigandi annarrar tveggja lúxussnekkjanna sem sáust fyrir utan Reykjavíkurhöfn í morgun. Snekkjunum, sem bera nöfnin After You og Emotional, var báðum siglt til Reykjavíkur frá Vlissingen í Hollandi.

Malouf, eigandi snekkjunnar After You, er eigandi ástralska sorphirðufyrirtækisins Dial A Dump sem og Ahoy Club sem sér um sölu og leigu snekkja. After You og er nú lögst við bryggju við Reykjavíkurhöfn en Emotional liggur enn við akkeri fyrir utan Reykjavíkurhöfn frá því í morgun.

 After You er af gerðinni Xplorer og er stærra skip en Emotional. Emotional var smíðuð í Tyrklandi og hönnuð af hollenska fyrirtækinu Damen Yachting. Hún er í raun hönnuð sem stuðningsskip fyrir Xplorer-snekkjurnar, sem eru hannaðar fyrir auðuga landkönnuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×