Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 5. júní 2026 09:42 Fjölskyldan verður saman í Noregi í sumar til að vera við hennar hlið. Getty Mette-Marit krónprinsessa Noregs er komin á biðlista fyrir lungnaígræðslu. Heilsu hennar hefur hrakað undanfarið en hún hefur glímt við svokallaða lungnatrefjun um skeið. „
Þróun lungnasjúkdóms krónprinsessunnar er alvarleg. Eftir ítarlegt læknismat hefur hún nú verið sett á lista yfir þá sem gangast undir lungnaígræðslu um leið og það er mögulegt,“ er haft Are Holm, yfirlækni og lungnasérfræðingi við Rikshospitalet, í tilkynningu frá höllinni. Samkvæmt umfjöllun Verdens gang er það skilyrði fyrir veru á biðlista fyrir lungnaígræðslu að eiga ekki nema eitt til tvö ár eftir ólifuð án slíkrar aðgerðar. Samkvæmt Gunnari Guðmundssyni lungnalækni veldur lungnatrefjun því að bandvefur myndast í lungum í stað heilbrigðs lungnavefs. Þannig truflast loftskipti um lungun og súrefni kemst hvorki inn né koltvísýringur út úr líkamanum á eðlilegan hátt. Það getur leitt til öndunarbilunar. Ef sjúkdómurinn svarar ekki meðferð getur hann verið banvænn án lungnaígræðslu. Ástand krónprinsessunnar tók að versna hratt fyrir stuttu síðan og Hákon krónprins fór fyrr heim úr opinberri heimsókn sinni til Japans til að vera við hlið eiginkonu sinnar. Ingrid Alexandra prinsessa flytur einnig heim til Óslóar og verður í skiptinámi þar í vetur en hún er í námi við Háskólann í Sydney í Ástralíu. Sverrir Magnús prins er í námi í Evrópu og mun halda því áfram í vetur samkvæmt umfjöllun Verdens gang en kemur heim um leið og ástandið krefur þess að eigin sögn. Marius Høiby sonur Mette-Marit sætir gæsluvarðhaldi fyrir ítrekuð ofbeldis- og kynferðisbrot en hefur farið fram á að vera látinn laus til að vera með móður sinni.
Noregur Kóngafólk Mest lesið Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira